Alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson tryggði sér í gær titilinn skákmeistari Reykjavíkur þegar hann lagði kandídatameistararann Benedikt Briem að velli í næst síðustu umferðinni. Benedikt og Guðmundur Halldórsson voru þeir einu sem gátu náð Degi fræðilega en þar sem Guðmundur gerði jafntefli í sinni skák getur enginn náð Degi að vinningum og titilinn hans þrátt fyrir eina óteflda umferð.

Á efsta hafði Dagur hvítt gegn Benedikt og upp kom drottningarbragð. Benedikt jafnaði taflið nokkuð auðveldlega en á móti var Dagur e.t.v. ekki að leggja mikið á stöðuna og beið átekta.

Benedikt ætlaði sér greinilega sigur og fórnaði peði og fór í aðgerðir á kóngsvæng, beina árás. Alls ekki galið plan en g-peða framrás Benedikts reyndist þó grunnhyggin og Dagur náði að loka búðinni og svarta sóknin og þar með staðan varð einfaldlega bensínlaus.

Eina sem gat ógnað toppsti Dags núna var sigur Guðmundar Halldórssonar gegn Arnari Milutin. Guðmndur hafði lengst af þægilegra tafl með svörtu en náði aldrei að setja Arnar undir nægjanlega pressu þannig að hvíta staðan bognaði. Jafntefli niðurstaðan og sigur Dags því orðinn öruggur.

Dagur með 7,5 vinning og hefur þegar tryggt sigurinn eins og áður sagði. Þeir Guðmundur Halldórsson og Jóhann Ragnarsson eru í 2-3. sæti með 6 vinninga en svo hafa sex skákmenn 5,5 vinning.

Skákþinginu lýkur á miðvikudaginn þegar lokaumferðin verður tefld. Dagur hefur svart gegn Guðmundi Halldórssyni á efsta borði. Halldór Grétar mætir Jóhanni Ragnarssyni og jafnar og spennandi viðureignir á öðrum borðum.

MYNDIR

_D0A1992

Almennt um mótið

Teflt er á sunnudögum klukkan 13:00 og miðvikudögum klukkan 18:30.

Dagskrá:

  1. umferð miðvikudag 7. jan 18:30
  2. umferð sunnudag 11. jan 13:00
  3. umferð miðvikudag 14. jan 18:30
  4. umferð sunnudag 18. jan 13:00
  5. umferð miðvikudag 21. jan kl. 18:30
  6. umferð sunnudag 25. jan 13:00
  7. umferð miðvikudag 28. jan 18:30
  8. umferð sunnudag 1. feb 13:00
  9. umferð miðvikudag 4. feb 18:30

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Tímamörk:

90 mín á 40 leiki, síðan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina.

Skákstjórn:

Daði Ómarsson og Jon Olav Fivelstad

Aðalverðlaun

  • 1. sæti kr. 110.000
  • 2. sæti kr. 55.000
  • 3. sæti kr. 35.000

Aukaverðlaun

Aukaverðlaun eru þannig að frá og með 11. skákmanni miðað við upphafsröð í mótinu (strarting rank) verður skákmönnum, þaðan og niður, skipt í fjórar jafnstórar stigagrúbbur. Sem dæmi: Taki 50 manns þátt í mótinu þá væri þetta svona:

Efstu 10 keppa ekki um aukaverðlan, heldur aðalverðlaun.

Keppendur númer 11.-20. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun A.

Keppendur númer 21.-30. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun B.

Keppendur númer 31.-40. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun C.

Keppendur númer 41.-50. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun D.

Sá sem endar mótið efstur í A grúbbu vinnur því aukaverðlaun A, og svo framvegis.

Aukverðlaun í öllum flokkunum fjórum eru 12.500 krónur.

Oddastig (tiebreaks):

1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger

Þátttökugjöld: 

kr. 8.000 fyrir 18 ára og eldri.

kr. 4.000 fyrir 17 ára og yngri.

Frítt fyrir Stórmeistara

Skráningarform:

Skráningaform: U-17

Skráðir keppendur:

Skrá yfirsetu:

Keppt er um titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2026 og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Oliver Aron Jóhannesson.

Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt (Hort-kerfi), en oddastig (tiebreaks) látin skera úr um lokaröð. Aukaverðlaun ganga óskipt til þess sem hefur flest oddastig.

Skákþing Reykjavíkur er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

- Auglýsing -