Fyrsta keppnisdegi er lokið á Norðurlandamóti ungmenna sem fram fer í Fredericia í Danmörku.
Vel fer um íslenska hópinn á mótsstað og er staðið vel að öllu skipulagi hjá Dönum.
A-flokkur (U20)
Benedikt Briem byrjar mótið af krafti og er einn efstur í flokknum með 2/2. Seinni skák hans í dag var sviptingasöm. Benedikt lendir í klemmu eftir byrjunina en klók skiptamunsfórn hleypti lífi í stöðu hans og hvítur missti tökin í framhaldinu. Ótrúlegt að sjá hversu sterk svarta staðan varð, nánast með alla mennina ennþá uppi í borði.
Adam Omarsson er með hálfan vinning að loknum fyrsta keppnisdegi. Hann átti fína möguleika í síðari skák dagsins en varð að sætta sig við tap úr jöfnu endatafli.
B-flokkur
Guðrún Fanney Briem hefur einn vinning og Markús Orri Óskarsson hálfan vinning. Þau mættust innbyrðist í seinni skák dagsins, sem er alltaf óheppilegt á Norðurlandamótum. Þar hafði Guðrún sigur í spennandi viðureign.
C-flokkur
Jósef Omarsson hefur einn vinning eftir daginn en Sigurður Páll Guðnýjarson er enn ekki kominn á blað. Þeir eiga báðir meira inni á mótinu og nóg eftir enn.
D-flokkur
Haukur Víðis Leósson er í hópi efstu manna með tvo vinninga en Birkir Hallmundarson hefur einn vinning.

Haukur tefldi mjög vel útfærða skák gegn Norðmanninum Maurstad í síðari skák dagsins. Hér er leitað í vopnabúr Vignis Vatnars í byrjuninni og Norðmaðurinn yfirspilaður í miðtaflinu.
E-flokkur
Pétur Úlfar Ernisson og Dagur Sverrisson hafa báðir einn vinning eftir daginn.
Pétur byrjaði mótið af krafti með skemmtilegri skák í drekaafbrigði Sikileyjarvarnar.
Ísland á tíu fulltrúa á mótinu sem tefla í fimm aldursskiptum flokkum.
- Benedikt Briem
- Adam Omarsson
- Markús Orri Óskarsson
- Guðrún Fanney Briem
- Jósef Omarsson
- Sigurður Páll Guðnýjarson
- Haukur Víðis Leósson
- Birkir Hallmundarson
- Pétur Úlfar Ernisson
- Dagur Sverrisson
Þjálfari hópsins er Björn Ívar Karlsson.
Beinar útsendingar (kl. 9:10 og 15:10)
Keppendalisti og dagskrá















