Það var hart barist á öðrum keppnisdegi NM ungmenna í Danmörku.

A-flokkur

Benedikt Briem byrjaði daginn á vel útfærðri skák þar sem undirbúningurinn hitti í mark. Hann hélt pressunni lengi gegn sterkum andstæðingi sem brotnaði að lokum. Benedikt tapaði seinni skák dagsins en er enn í toppbaráttunni með 3 vinninga af 4 og í þriðja sæti.

Adam Omarsson hefur 1 vinning eftir jafntefli í seinni skák dagsins. Adam er í 10. sæti.

B-flokkur

Markús Orri Óskarsson hefur 2 vinninga í 10. sæti en Guðrún Fanney Briem 1,5 vinning í 12. sæti.

C-flokkur

Jósef Omarsson hefur 3 vinninga í þriðja sæti og Sigurður Páll Guðnýjarson kom sér á beinu brautina í dag og er með 2 vinninga í 10. sæti.

Jósef byrjaði daginn á góðri sigurskák sem er kennslubókardæmi um hvernig á að tefla gegn lélegum biskup.

Jósef er kominn í toppbaráttuna og mun tefla lykilviðureign í fyrramálið.

D-flokkur

Haukur Víðis Leósson hefur 2,5 vinning í 4. sæti og Birkir Hallmundarson 2 vinninga í 6. sæti.

Haukur komst á efsta borð í dag en tapaði þar gegn Zhang, Finnanum sterka.

Birkir tefldi góða skák í 4. umferð:

E-flokkur

Pétur Úlfar Ernisson hefur 2,5 vinning í 4. sæti og Dagur Sverrisson 2 vinninga í 6. sæti.

Dagur tefldi í rómantískum stíl í anda skákmanna frá 19. öld í morgun. Sjón er sögu ríkari!

Pétur er líka sókndjarfur og tefldi mjög spennandi skák í anda Mikhail Tal, þar sem mönnum var fórnað og andstæðingurinn fann ekki bestu vörnina.

Mótinu lýkur á morgun með tveimur síðustu umferðunum. Enn getur allt gerst í baráttunni um verðlaunasæti á mótinu og mikil spenna framundan.

Ísland á tíu fulltrúa á mótinu sem tefla í fimm aldursskiptum flokkum.

A-flokkur (U20)
  • Benedikt Briem
  • Adam Omarsson
B-flokkur (u17)
  • Markús Orri Óskarsson
  • Guðrún Fanney Briem
C-flokkur (u15)
  • Jósef Omarsson
  • Sigurður Páll Guðnýjarson
D-flokkur (u13)
  • Haukur Víðis Leósson
  • Birkir Hallmundarson
E-flokkur (u11)
  • Pétur Úlfar Ernisson
  • Dagur Sverrisson

Þjálfari hópsins er Björn Ívar Karlsson.

Beinar útsendingar (kl. 9:10 og 15:10)
Keppendalisti og dagskrá

- Auglýsing -