Að venju er hraðskákmót Akureyrar haldið í kjölfar Skákþings Akureyrar, sem lauk um síðustu helgi með sigri Símonar Þórhallssonar eftir dramatíska lokaumferð.
Hraðskákmótið hefst kl. 13.00 í Skákheimilinu á Akureyri og öllum heimil þátttaka eins og ætíð. Borðgjald er kr. 700, en að venju frítt fyrir börn og unglinga.,
Núverandi hraðskákmeistari Akureyrar er Rúnar Sigurpálsson.
- Auglýsing -















