Fyrsta reiknaða skákmót Skákfélags Mosfellsbæjar var haldið á Valentínusardaginn, 14. febrúar. Teflt var við góðar aðstæður og skákmenn gátu fengið sér kaffi í boði bókasafnsins. Þá voru ástarpungar og kleinuhringir á staðnum í boði Mosfellsbakarís.
Alls tóku 15 keppendur þátt og tefldar voru sjö umferðir í spennandi og jöfnu móti. Gauti Páll Jónsson (2252) stóð uppi sem sigurvegari mótsins með 6 vinninga af 7 mögulegum. Hann tefldi af miklu öryggi og vann sex skákir í röð áður en hann tapaði í lokaumferðinni.
Í öðru sæti varð Eiríkur K. Björnsson (2051) með 5 vinninga. Í þriðja sæti hafnaði Rögnvaldur Jónsson (1733), einnig með 5 vinninga, en hann vann sigurvegara mótsins í lokaumferðinni.
Ómar Jón Holm Kjartansson (1459) átti gott mót og hafnaði í fjórða sæti með 4,5 vinning. Hilmar Freyr Friðgeirsson (0) átti einnig frábært mót og endaði í fimmta sæti með 4 vinninga og stigaárangur upp á 1805 stig.
Við þökkum öllum keppendum kærlega fyrir þátttökuna og hlökkum til næsta móts.
Úrslit mótsins á Chess-Results:
https://s1.chess-results.com/tnr1349118.aspx?lan=1&art=1&rd=7&SNode=S0
















