Íslendingar náðu í þrenn verðlaun á NM ungmenna í Danmörku – en mótinu lauk fyrr í kvöld.
A-flokkur
Benedikt Briem endaði með 4 vinninga og lenti í þriðja sæti. Benedikt byrjaði mótið vel og var efstur eftir þrjár umferðir en fataðist flugið í baráttunni við efstu menn. Benedikt væntanlega svekktur að enda ekki ofar enda sannaði hann á mótinu að hann er meðal sterkustu skákmanna Norðurlandanna í sínum aldursflokki.
Adam Omarsson endaði með 1 vinning í 12. sæti. Adam náði sér ekki almennilega á strik á mótinu og getur betur enda hörku skákmaður þegar hann er í stuði.
Norðmaðurinn Martin Fiskaaen varð Norðurlandameistari með 5 vinninga.

B-flokkur
Markús Orri Óskarsson og Guðrún Fanney Briem enduðu bæði með 3 vinninga í 6.-7. sæti.
Markús átti góðan endasprett, vann sterkan andstæðing frá Finnlandi í morgun og tefldi svo við stigahæsta mann mótsins, Norðmannin Haug (2414) í lokaumferðinni. Þar átti Markús góða möguleika en varð að sætta sig við tap á endanum.
Guðrún Fanney sýndi líka og sannaði að hún ræður vel við sterka andstæðinga frá Norðurlöndunum. Skák hennar í lokaumferðinni fer í sögubækurnar en þar hélt hún jafntefli með einn biskup gegn hrók og peði í æsispennandi skák sem náði yfir 100 leiki.
Markús og Guðrún geta bæði verið sátt við frammistöðuna og hækka á stigum.
Áðurnefndur Haug varð Norðurlandameistari með 4,5 vinning í annars jöfnum flokki.
C-flokkur
Jósef Omarsson endaði með 4 vinninga og náði í brons. Vel gert hjá honum!
Sigurður Páll Guðnýjarson endaði með 2,5 vinning. Mótið byrjaði ekki nógu vel hjá honum en hann kom sér vel á strik og líklega var mótið ekki nógu langt enda var hann fyrst að komast í stuð þegar það kláraðist.
Villards Sandmann frá Danmörku varð Norðurlandameistari með 5 vinninga.
D-flokkur
Haukur Víðis Leósson og Birkir Hallmundarson fengu báðir 3,5 vinning og enduðu í 6.-7. sæti. Þeir áttu báðir mjög góða spretti á mótinu en töpuðu lykilviðureignum gegn sterkum andstæðingum.
Finninn Yiming Zhang varð Norðurlandameistari með 5 vinninga.
E-flokkur
Pétur Úlfar Ernisson endaði með 4 vinninga og fékk brons. Góður endasprettur skilaði þessum flotta árangri.
Pétur tefldi lokaskákina á efsta borði og réði skákin úrslitum um hvernig verðlaun myndu raðast. Æsispennandi skák sem skipti nokkrum sinnum um eigendur og endaði svo með þráskák – í stöðu þar sem allt var í uppnámi.
Ég hvet lesendur til þess að renna yfir þessa!
Dagur Sverrisson fékk 3 vinninga og endaði í 5. sæti. Líka mjög góður árangur hjá Degi, sem var að tefla á sínu fyrsta Norðurlandamóti.
Norðmaðurinn Michael Mortensen varð Norðurlandameistari með 5,5 vinning.

Mótshaldið var til fyrirmyndar hjá Dönum og aðstæður með besta móti.
Vel heppnuðu móti lokið!
- Benedikt Briem
- Adam Omarsson
- Markús Orri Óskarsson
- Guðrún Fanney Briem
- Jósef Omarsson
- Sigurður Páll Guðnýjarson
- Haukur Víðis Leósson
- Birkir Hallmundarson
- Pétur Úlfar Ernisson
- Dagur Sverrisson
Þjálfari hópsins var Björn Ívar Karlsson.
Beinar útsendingar
Keppendalisti og dagskrá
















