Skákdeild Breiðabliks A sveit, sigraði á Hraðskákmóti taflfélaga 2026 eftir „bráðabana“ við A sveit Taflfélags Reykjavíkur. Báðar sveitirnar komu jafnar í mark á stigum með 20 stig af 22 mögulegum. Bronsverðlaunin hlaut A sveit Fjölnis með 17 stig, sama stigafjölda og KR ingar en með fleiri vinninga.
Þessar fjórar skáksveitir leiddu mótið lengst af og höfðu nokkra yfirburði á næstu skáksveitir þegar upp var staðið. Verðlaunabikar B sveita hlutu TR ingar líkt og í fyrra. Hraðskákmótið var það fjölmennasta frá upphafi og firnasterkar skáksveitir mættar til leiks. Það var Skákdeild Fjölnis sem hélt hraðskákmótið líkt og undanfarinn áratug og að þessu sinni var mótið haldið í Borgarholtsskóla í Grafarvogi við bestu aðstæður. Hraðskákmót taflfélaga er árlegt skákmót sem fyrst var haldið árið 1995. Nú rúmum 30 árum síðar bættist nýtt nafn á farandbikarinn með sigri Blika.

Um 130 skákmenn og skákkonur tefldu á mótinu fyrir skákfélögin sín. Tímamörk voru 3 – 2 og tefldar 11 umferðir. Skákstjóri var Gunnar Björnsson, framkvæmdarstjóri Skáksambandsins og mótsstjóri Helgi Árnason formaður Skákdeildar Fjölnis. Aðstæður í Borgarholtsskóla voru eins og fyrr sagði allar til fyrirmyndar, nægt rými og hátt til lofts.

Skákdeild Fjölnis vill þakka öllum skákfélögum og keppendum sem mættu til leiks fyrir þátttökuna og skemmtilega keppni. Einnig vill skákdeildin þakka Skólameistara og starfsfólki Borgarholtsskóla fyrir mikinn velvilja og jákvætt samstarf við framkvæmd mótsins. Það svífur afar „jákvæð skákmenning“ yfir vötnum Grafarvogs. Nokkuð ljóst að Fjölnismenn munu leita eftir áframhaldandi samstarfi við BHS að ár

- Auglýsing -
















