Febrúar barnaskákmót Skákdeildar KR var haldið síðastliðinn laugardag þann 20. dag mánaðarins. Þátttakendur voru 75 og hafa ekki áður verið fleiri. Keppt var tveimur flokkum 1.– 3. bekk og 4-9. bekk og tefldar sjö umferðir. Eins og á öðrum mótum sem haldin hafa verið á þessum vetri þá var eldri flokkurinn fjölmennari með 40 keppendum á meðan 35 voru í yngri flokki, svo munurinn fer aftur minnkandi. Taflmennskan var ágæt sérstaklega í eldri flokknum en meira um mistök og ólöglega leiki í þeim yngri enda margir keppendur þar sem ekki hafa mikla keppnisreynslu.
Í eldri flokknum voru Katrín Ósk Tómasdóttir og Emil Finnsson Fenger efst og jöfn með 6v af sjö mögulegum. Einni vinningurinn sem þau misstu niður fór í þriðju umferð þegar Katrín tapaði fyrir Miru og Emil fyrir Tristan. Þau tefldu svo ekki saman. Katrín var svo örlítið hærri en Emil á stigum og fyrsta sætið var hennar í annað skipið í röð á þessum mótum. Leið hennar á toppinn var hins vegar ekki jafn bein og breið og á janúarmótinu. Emil hefur æft vel undanfarið og tefldi líka vel á mótinu og af meira sjálfstrausti en undanfarið. Næstir komu svo Tristan Fannar Jónsson og Anh Hai Tran með 6,5v en hér hlaut Tristan þriðja stætið, hærri á stigum sem kom ekki á óvart þar sem hann leiddi nánast allt mótið þangað til Katrín tók hann úr toppsætinu í lokaumferðinni.
Í yngri flokki voru Róbert Heiðar Skúlason og Helgi Fannar Óðinsson efstir og jafnir með 6,5v. í sjö skákum. Þeir gerðu jafntefli þegar þeir mættust í fimmtu umferð í skák með miklum sviftingum en unnu alla aðra andstæðinga. Ekki var því um annað ræða en að reikna stig og þar var Róbert sjónarmun á undan og hlaut fyrir vikið fyrsta sætið. Enn meiri stigaútreikning þurfti til finna út þann þriðja en fimm voru næstir jafnir með 5v. Það voru Brimir Steinn Markúsarson, Tauras Nareika, Vedansh Kalasthri, Sævar Svan Valdimarsson og Tómas Máni Sakalauskas. Í þessum útreikningi voru Brimir Steinn Markúsarson og Tauras Nareika einnig jafnir og fengu báðir þriðja sætið.
Skákdeild KR þakkar keppendum fyrir þátttökuna og öllum þeim aðstoðuðu við mótið fyrir þeirra framlag. Nánari upplýsingar um öll úrslit eru hér fyrir neðan ásamt tengli inn á myndasíðu Skáksambandsins:
Barnaskákmót KR febrúar 2026 – yngri flokkur
Barnaskákmót KR febrúar 2026 – eldri flokkur
















