Átta manna úrslit á Síminn Invitational í netskák hófust síðastliðið sunnudagskvöld þegar tvær viðureignir fóru fram. Alþjóðlegi meistarinn og landsliðsmaðurinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson varð að lúta í dúk gegn FIDE-meistaranumn Jóni Kristni Þorgeirssyni. Jón vann góðan og nokkuð öruggan sigur en seinna einvígið á milli Björns Þorfinnssonar og Símons Þórhallssonar varð æsispennandi og fór alla leið í bráðabanaskák þar sem Björn hafði betur.
Jón Kristinn komst í 3-0 áður en Sasha beit frá sér og minnkaði muninn í 3-1. Nær komst Aleksandr ekki og Jón Kristinn tók þráskák með unnið tafl sem dugði í 3,5-1,5 sigur.
Björn virtist ætla að ná svipað góðum sigri, komst í 2-0 og 3-1 en missti þráðinn og Símon náði að jafna 3-3 á ótrúlegan hátt eftir að Björn missti algjörlega einbeitinguna í sjöttu skákinni. Í bráðabananum hafði Björn betur og 4-3 sigur niðurstaðan.
Skákskýringar voru í umsjón Ingvars Þórs og Hilmis Freys og var nokkur galsi í þeim félögum eins og sjá má í samantekt Tómasar Tandra….
Útsendinguna er einnig hægt að nálgast í heild sinni (hér að neðan):
Björn og Jón Kristinn eru því komnir í undanúrslit þar sem þeir munu svo mætast. Sunnudagskvöldið 1. mars klárast 8-manna úrslit þegar Vignir mætir Degi og Ingvar Þór mætir Bárði og mætast sigurvegararnir í þeim viðureignum svo í undanúrslitum.
Halldór Ingi Kárason, Unnar Ingvarsson, Brynjar Bjarkason, Aron d og Halldór Brynjar Halldórsson eru efstir í Draumaliðsdeildinni.
Almennt um Síminn Invitational:
Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport. Aðrir styrktaraðilar eru Collab, Ljósleiðarinnn og Lengjan.
Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ
Verðlaun í aðalkeppninni
- 200.000 kr
- 100.000 kr.
- 25.000 kr
- 25.000 kr.














