Glæsilegu alþjóðlegu móti lauk í dag í Stúkunni í Kópavogi þar sem lokaumferðin var tefld. Fjórir erlendir stórmeistarar ásamt heimavarnarliði tóku þátt í Alþjóðlega Kópavogsmótinu – Ungir Meistarar. Segja má að tilgangur mótsins hafi heppnast að mörgu leiti, einn af íslensku titilhöfunum náði sér í áfanga að alþjóðlegumst meistaratitli. Þar var á ferðinni Birkir Ísak Jóhannsson sem í millitíðinni tryggði sér jafnfram FIDE-meistaratitilinn með því að komast yfir 2300-elóstiga múrinn. Vignir Vatnar Stefánsson varð hlutskarpastur í heimavarnarliðinu, vann í lokaumferðinni og endaði með 6 vinninga af 9 mögulegum, hálfum vinningi á eftir efstu mönnum, Paulius Pultinevicius og Jaime Santos Latasa.

Rennum yfir gang mála í lokaumferðinni.

Vignir Vatnar Stefánsson – Bárður Örn Birkisson

Vignir varð að vinna sína skák í lokaumferðinni og treysta á hagstæð úrslit í öðrum skákum til þess að eiga möguleika á sigri á mótinu. Vignir gerði sitt, vann góðan tæknilegan sigur í Katalan-byrjuninni og tefldi heilt yfir mjög þétt í þessari skák. Því miður duttu aðrar skákir ekki með Vigni og þriðja sætið niðurstaðan en góðu fréttirnar að Vignir hefur greinilega vaxið með hverri umferð á mótinu og er vonandi kominn í gott keppnisform fyrir Reykjavíkurskákmótið sem er framundan.

Valery Kazakouski – Birkir Ísak Jóhannsson 

Birkir Ísak þurfti að klára ærið verkefni í lokaumferðinni, verja svörtu mennina gegn þaulreyndum litháískum landsliðsmanni, Valery Kazakouski. Skemmst er frá því að segja að Litháinn náði að setja smá pressu á Birki á köflum en fann engan höggstað. Mestu erfiðleikarnir fólust í því að verja hróksendatafl peði undir en Birkir var með fræðin algjörlega á hreinu og hélt endataflinu auðveldlega.

Fyrsti IM-áfangi Birkis og hann vel að honum kominn! Birkir var einnig grátlega nálægt áfanga á Íslandsmóti Skákfélaga, var eiginlega með hann í hendi en gaf frá sér öruggt jafntefli til að tefla til vinnings. Greinilegt að styrkleikinn er til staðar, verður gaman að sjá Birki meira við skákborðið næstu misserin!

Jaime Santos Latasa – Hilmir Freyr Heimisson

Spánverjinn sterki og stigahæsti skákmaður mótsins tryggði efsta sætið með því að leggja lánlausan Hilmi Frey að velli. Sigurinn engan veginn öruggur, Hilmir fékk sín færi en þetta var einfaldlega ekki mótið hans.


Paulius Pultinevicius – Aleksandr Domalchuk-Jonasson

Paulius endaði í skiptu efsta sæti með Jaime og lagði Aleksandr Domalchuk-Jonasson að velli í lokaumferðinni. Sigurinn virtist að mestu góður tæknilegur sigur, Paulius þéttur vann peð og sigldi vinningnum heim að lokum..

Dagur Ragnarsson  – Mykhaylo Olesiyenko

Oleksiyenko lagði Dag með svörtu í lokaumferðinni, skák sem skipti litlu máli um lokaniðurstöðuna. Dagur hafði fína stöðu en jafnt og þétt tók úkraínski stórmeistarinn yfirhöndina.

Úrslit umferðarinnar:

Aðeins eitt jafntefli í umferðinni, að vanda, en „rétt“ jafntefli heldur betur!

Staðan:

Paulius og Jaime eru sigurvegarar á mótinu og Vignir einn í þriðja sæti, fínustu mót hjá þessum meisturum. Birkir kemst glæsilega frá mótinu, annar af stigalægstu keppendum þess en endar um mitt mót og nær IM-áfanga.

Reykjavíkurskákmótið næst á dagskrá hjá flestum íslensku meistaranna!

Skákdeild Breiðabliks í samstarfi við Helga Ólafsson á mikið hrós skilið fyrir mótahaldið en mót af þessu tagi hefur sárlega vantað fyrir íslenska titilveiðara undanfarin ár. Sigtryggssjóður kom jafnframt sterkur inn í þetta verkefni!

Forsvarsmenn mótsins ásamt Jóhönnu forseta og Ásdísi bæjarstjóra Kópavogs.

Kópavogur International 2026

Almennar upplýsingar um mótið:

Staðsetning Glersalurinn á þriðju hæð stúkunnar við Kópavogsvöll. Kaffi og veitingar verða á staðnum.

Dagskrá (9 umferðir, einn hvíldardagur)

  • Þriðjudagur, 10. mars, kl. 15:00 – Opnunarathöfn og 1. umferð
  • Miðvikudagur, 11. mars, kl. 15:00 – 2. umferð
  • Fimmtudagur, 12. mars, kl. 15:00 – 3. umferð
  • Föstudagur, 13. mars, kl. 15:00 – 4. umferð
  • Laugardagur, 14. mars, kl. 15:00 – 5. umferð
  • Sunnudagur, 15. mars, kl. 15:00 – 6. umferð
  • Mánudagur, 16. mars – Hvíldardagur
  • Þriðjudagur, 17. mars, kl. 15:00 – 7. umferð
  • Miðvikudagur, 18. mars, kl. 15:00 – 8. umferð
  • Fimmtudagur, 19. mars, kl. 11:00 – 9. umferð
  • Fimmtudagur, 19. mars, kl. 16:00 – Lokaathöfn

Keppendur

Meðalstig keppenda er 2432 skákstig og er stigahæsti skákmaður mótsins Jaime Santos Latasa sem varð Íslandsmeistari með Vestmannaeyingum um helgina. Í raun eru fjórir fyrstaborðsmenn úr keppninni með, þeirra á meðal Vignir Vatnar Stefánsson sem fer fyrir heimavarnarliðinu. Aðrir Íslendingar eru flestir titilveiðarar, menn sem gera sér vonir um annaðhvort áfanga að alþjóðlegum meistaratitli eða stórmeistaratitli.

Frekari upplýsingar:

- Auglýsing -