Loka keppnisdagurinn fór fram í dag í alþjóðlegri unglingakeppni, 13. ChessMates mótinu. Aftur voru tvær umferðir tefldar á sama degi og réðust leikar í úrslitariðlinum sem Ísland var í. Íslensku krakkarnir hefðu þurft að ná sigri gegn Sachsen-Anhalt til að eiga möguleika á efsta sæti en sú viðureign endaði með 5-5 eftir æsispennandi viðureign. Í seinni viðureign dagsins mætti liðið Eistum og ekkert annað en sigur kom til greina til að ná þriðja sætinu.
Ísland – Sachsen-Anhalt 5-5
Hér var á ferðinni háspennuviðureign. Sachsen-Anhalt byrjuðu betur og komust fljótt í 1-3 en íslenska liðið sótti á og í lokin hefði liðið í raun átt að vinna en sigurinn rann úr greipum okkar og jafntefli niðurstaðan.
U20

Efsti flokkurinn hefur verið í mjög góðum gír það sem af er móti og Ingvar Wu verið einn af bestu mönnum liðsins og taplaus með 3,5 af 4 eftir þessa skák. Ingvar tefldi eins og í öllum umferðum af miklu öryggi og má segja að skákin hafi meira og minna klárast eftir skemmtielga taktík í miðtaflinu. Hvítur tefldi byrjunina einstaklega krafttlaust og fékk enga stöðu og Ingvar tók yfir frumkvæðið.
22…a4! 23.Bc2 Bxf2+ og svo vinnur svartur manninn til baka á f2. Ingvar fékk yfirburðatafl og vann úr umframpeðinu að mestu áreynslulaust.
Benedikt hefur einnig verið traustur, 3 vinningar af 4 og vann hann góðan tæknisigur gegn WFM í ítalska leiknum, vel að verki staðið!
U18

Markús Orri Jóhannsson tapaði sinni skák, missti aðeins þráðinn snemma í miðtaflinu og vörnin erfið. Markús barðist eins og hans er venja en náði ekki að bjarga taflinu í þetta skiptið.
Nafni hans Óskarsson er í algjöru banastuði, hefur fullt hús og hefur verið mjög gaman að fylgjast með taflmennsku hans á mótinu sem hefur einkennst af miklu öryggi. Í skák dagsins í franskri vörn beið hann átekta, andstæðinur hans hefði vissulega getað þvingað jafnteflið en um leið og færi gafst lét Markús til skarar skríða og gjörsamlega keyrði yfir hvítu stöðuna á kóngsvæng.
U16

Núll vinningar í U16 var undir væntingum. Josef tapaði baráttuskák og Guðrún missti tökin á mjög vænlegri stöðu.
U14

Emil tapaði sinni skák, andstæðingur hans refsaði mistökum í miðtaflinu með góðri taflmennsku. Emil hefur engu að síður sýnt góða spretti og að hann er hörkuskákmaður, vantar fyrst og fremst meiri reynslu.
Reynsluna vantar ekki hjá Birki sem hefur farið á gríðarlegan fjölda alþjóðlegra móta þrátt fyrir ungan aldur. Hann náði sterku frumkvæði með svörtu gegn andstæðingi sínum og refsaði svo þegar hvítur fór á vafasamar peðaveiðar.
38…Da1+ 39.Dd1 Dxd1+ 40.Rxd1 Rd5 og hrókurinn fellur!
U12

Dagur tefldi sína bestu skák og virtist vera nálægt því að hreinlega máta andstæðing sinn eftir flotta sókn í Grand Prix árásinni. Í miðri mátsókn varð hvíta drottningin strandaglópur á h7 og glataðist, svekkjandi tap.
Pétur stóð nokkuð verr framan af sinni skák en andstæðingur hans tók eitrað peð og staða Péturs sprakk út. Upp kom mjög athyglisvert endatafl.
Pétur hafði biskupinn og hættulegt h-peð en varð að hafa stjórn á frelsingjum hvíts og passa að missa ekki eigin peð þar sem aðeins h-peð væri alltaf jafntefli. Eftir miklar tilfæringar kom Pétur kóngi sínum inni í herbúðir hvíts og fangaði riddarann úti í horni.
Úrslit 4. umferðar (úrslitariðill)
Niðurstaðan 5-5 jafntefli og eins og gegn Rotterdam þar sem viðureignin tapaðist með minnsta mun þá munaði eiginlega kjánalega litlu á að sveitin næði í sigur.
Ísland – Eistland 4,5-5,5
Ísland vann að vinna Eistland til að ná þriðja sætinu vegna óhagstæðra úrslita í öðrum viðureignum. Eistarnir reyndust of sterkir að þessu sinni en mjótt var á mununum í lokin.
U20

Í fyrsta skipti lentum við undir pressu á báðum borðum í U20. Ingvar tapaði peði tiltölulega snemma en náði að hanga á stöðunni með góðri baráttu. Vel gert hjá Ingvari sem var taplaus með 4 vinninga af 5.
Benedikt fann ekki til að tengja byrjunina við endataflið og lenti í erfiðri vörn og tefldi sú eistneska góða skák með biskupaparinu og náði að knésetja Benedikt.
U18

Markús Orri Óskarsson gerði tiltölulega stutt jafntefli en þá voru einungis mislitir biskupar eftir á borðinu. Gott mót hjá Akureyringnum sem fékk 4,5 af 5 vinningum og stóð sig best íslensku keppendanna.
Markús Orri Jóhannsson náði að vinna sína skák eftir æsispennu. Markús fórnaði manni fyrir hættuleg frípeð og þau báru ávöxt og í endataflinu var hann orðinn skiptamun yfir og sigldi vinningnum heim.
U16
Jósef vann sína skák með góðri þolinmæði í endataflinu. Jósef lék mjög spakur 25.H1d2!? og lagði lævísa gildru sem svartur féll í!
25..Hd7? 25.Hxd7 Bxd7 26.Bxf7 og endataflið ætti að vinnast, og vannst!
Guðrún kláraði svo sína skák en það var síðasta skákin til að klárast í viðureigninni.
U14

Emil tapaði sinni skák en andstæðingur hans tefldi einstaklega vel. Birkir var með rjómastöðu en náði ekki að nýta sér það. Ákveðin óheppni að andstæðingurinn fann þvingaða leið í stöðu sem annars væri töpuð. Eftir síðustu leiki 30…h5+ Kf4 fann svartur skemmtilega leið.
31…g5! 32.Kxg5 Kg7!! og ótrúlegt en satt stendur svartur til vinnings eftir þennan leik, máthótunin á e3 er of sterk.
U12

Pétur komst lítt áleiðis gegn Petroff vörn andstæðings síns og eftir fórn á g6 var þráskák óumflýjanleg. Jafntefli niðurstaðan.
Dagur tefldi sóknarstíl eins og svo oft áður, fékk hættuleg færi en náði ekki að nýta sér þau. Eistinn tefldi vörnina vel og sneri taflinu við.
Úrslit 5. umferðar (úrslitariðill)
Úrslitariðillinn á chess-results -> Úrslitariðill
Það var á endanum sveit Sachsen-Anhalt sem stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa lagt Rotterdam að velli í hreinni úrslitaviðureign. Eistarnir enduðu í öðru sæti, Rotterdam í þriðja sæti og Ísland í fjórða sæti.
Í lokastöðuna frá chess-results vantar stig sem liðin tóku með sér úr undanriðlum.
Upplýsingar ->
- Heimasíða ChessMates
- Chess-Results
- Beinar útsendingar aðeins 2 efstu borð (u20) í hverri viðureign eru í beinni.

Fyrirkomulag:
- 5 umferðir: Tveir riðlar. Tvö efstu liðin i hvorum riðli tefla um verðlaunasæti. Hin liðin keppa um 5.-8. sæti.
- Tímamörk: 90 mínútur + 30 sekúndna viðbót á leik.
- Allar umferðir í Casa di Soci í Mónakó
Hversu oft hefur Ísland tekið þátt?
Ísland tekur nú þátt í þriðja skipti. Fyrst í áttunda mótinu á Írlandi árið 2023 og svo aftur í því tólfta York í Englandi árið 2025. Ísland mun haldið mótið árið 2027.
Mótið er frábært tækifæri fyrir Ísland til að gefa fleiri ungmennum tækifæri á að tefla fyrir Íslands hönd á hverju ári.
Hverjir tefla fyrir Ísland?
Ísland er sjötta sterkasta liðið á pappírnum.
Forsvarsmenn Chessmates um mótið:
“ChessMates International is about more than individual skill — it’s about teamwork,
cultural exchange, and building friendships across borders.”
— Jurriaan Kien, Forseti ChessMates og hugmyndasmiður.
“Hosting this event in Monaco continues the Principality’s proud tradition of supporting
international sports events, particularly chess, while celebrating youth cooperation and
team competition.”
— Jean-Michel Rapaire, forseti skáksambands Mónakó.
















