Reylkjavík Open 4. umferð

Eitt virtasta opna skákmót heims, Reykjavíkurskákmótið (Reykjavik Open), hefst á morgun miðvikudaginn 25. mars og stendur til 31. mars í Hörpu. Mótið hefur laðað að skákmenn frá öllum heimshornum síðan 1964 og enn einu sinni er metþátttaka! Um 430 skákmenn frá 50 löndum eru skráðir til leiks og hafa aldrei verið fleiri! 33 stórmeistarar taka þátt. 

Helstu stuðningsaðilar mótsins eru Reykjavíkurborg og Brim. Alexandra Briem, formaður borgarráðs setur mótið í ár og leikur fyrsta leikinn. 

Stigahæsti keppandinn

Stigahæsti keppandinn er Íraninn Amin Tabatabaei. Tabatabaei er þekktur fyrir kraftmikla og frumlega taflmennsku. Hann er búsettur í Frakklandi og getur ferðast til Íslands. 

Aðrir helstu keppendur

  • GM Bogdan-Daniel Deac (Rúmenía, 2655) – Reynslumikill keppandi sem oft skilar góðum árangri í opnum mótum. Vann mótið í hitteðfyrra. 
  • GM Aryan Tari (Noregur, 2642) – Fyrrum heimsmeistari unglinga og reglulegur gestur á mótinu. 
  • GM Vasyl Ivanchuk (Úkraína, 2624) – Goðsögn í lifandi lífi. Stemmingsmaður og mjög vinsæll hérlendis. 

Skákkonur í mótinu

Margar sterkar skákkonur setja svip sinn á mótið að þessu sinni. Má þar nefna. 

  • IM Carissa Yip (Bandaríkin, 2486)
  • IM Stavroula Tsolakidou (Grikkland, 2479)
  • GM Nino Batsiashvili (Georgía, 2472)
  • IM Leya Garifullina (FIDE, 2454)
  • IM Teodora Injac (Serbía, 2417)

Sú skákkona sem kann að vekja mesta athygli er hin enska Bodhana Sivanandan. Hún er aðeins 11 ára, komin í enska landsliðið og er sú yngsta í sögunni til að vinna stórmeistara. 

Helstu íslensku keppendur

Íslenskir skákmenn munu taka þátt í stórum stíl og reyna að skora vel gegn alþjóðlegum stórmeisturum. Helstu íslensku keppendurnir eru:

  • GM Vignir Vatnar Stefánsson (2511, 25. sæti í röðun) – okkar skærasta stjarna
  • GM Hannes Stefánsson (2417) – sigursælasti skákmaður Reykjavíkurmótanna 
  • GM Guðmundur Kjartansson (2416)
  • GM Bragi Þorfinnsson (2377)
  • IM Dagur Ragnarsson (2376)
  • IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2362)

Einnig taka þátt margir aðrir íslenskir skákmenn og skákkonur, þeirra sterkust  WGM Lenka Ptacnikova (2098). 

Hagnýtar upplýsingar

 

- Auglýsing -