Úrslit Síminn Invitational í netskák fóru fram á sunnudagskvöldið síðastliðið. Í úrslitum mættust stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson og hans fyrsti skákkennari, alþjóðlegi meistarinn, Björn Þorfinnsson. Skemmst er frá því að segja að Vignir vann nokkuð auðveldan sigur og urðu lokatölur 6-1 Vigni í vil.

Mótið var í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar voru á Símanum Sport. Aðrir styrktaraðilar eru Collab, Ljósleiðarinnn og Lengjan.

Skákskýringarnar voru í umsjón Björns Ívars og Ingvars Þórs.

Halldór Brynjar Halldórsson endaði efstur  í Draumaliðsdeildinni. Staðan í Draumaliðsdeildinni.

Í úrslitum voru 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.

Verðlaun í aðalkeppninni

  1. 200.000 kr – Vignir Vatnar Stefánsson
  2. 100.000 kr. – Björn Þorfinnsson
  3.   25.000 kr – Jón Kristinn Þorgeirsson
  4.   25.000 kr. – Ingvar Þór Jóhannesson
- Auglýsing -