Eftir seinni umferð dagsins á Reykjavíkurskákmótinu og þriðju umferð alls er óhætt að segja að efsti Íslendingurinn sé óvæntur! Hinn ungi og efnilegi 10 ára TR-ingur Pétur Úlfar Ernisson er eini Íslendingurinn með fullt hús að loknum keppnisdegi dagsins. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson náði ekki að kreysta vinning úr sinni skák og varð að gera sér jafntefli að góðu og hefur 2,5 vinning í námunda við efstu menn.
Pétur vann fínan sigur á hinum norska Magnus, þó ekki Carlsen! Norðmaðurinn gerði klaufaleg taktísk mistök sem Pétur nýtti sér. Fín skák hjá Pétri sem var aldrei með verra tafl með svörtu og tefldi af sínu alkunna óttaleysi.
Vignir fékk stuttan glugga snemma miðtafls til að fá betra tafl en missti af réttu leiðinni. Eftir það tefldi andstæðingur hans vel og gaf Vigni ekki færi en á móti var Vignir aldrei í hættu. Jafntefli niðurstaðan sem heldur öllu opnu þó Vignir hefði auðvitað viljað ná sigri hér.
Björn Hólm náði góðri jafnteflisfléttu gegn Hannesi Hlífari, annað gott jafntefli hjá Birni í dag.
40…Hh1+! 41.Kxh1 Rg3+ 42.Kg1 Db1+ og í kjölfarið sleppur hvítur ekki úr riddaraþráskákum. Riddaraskákin frá h1 í horninu ansi leiðinleg þarna!
Markús Orri Óskarsson náði sér í góð úrslit þegar hann lagði alþjóðlega meistarann Robert Baskin (2435) að velli með svörtu í franskri vörn. Markús heldur áfram góðu gengi sínu frá því á Chessmates mótinu um síðustu helgi.
Af ofurstórmeisturunum (2600 eló plús) voru það aðeins Tabatabaei (2700), Aryan Tari (2642) og Marc’andria Maurizzi (2614) sem héldu dampi og hafa fullt hús. Ivanchuk (2624) og Deac (2655) gerðu báðir jafntefli á efstu borðum á sviðinu. Enn hafa nokkrir skákmenn fullt hús og of snemmt að lesa í spilin. Einstaklingsúrslit má alltaf nálgast á chess-results (tengill að neðan) og sama með einstaka skákir.
View this post on Instagram
Fjórða umferð mótsins hefst kl. 15:00 á morgun, föstudag.
Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson verður með skákskýringar og má gera ráð fyrir að þær hefjist um kl. 17:00 á morgun í Stemmu í Hörpu.
Chess-Results
Hægt er að nálgast skákir á:
Streymarar:
- Hannah Sayce
- Tamara Kadovic
- Matthew Perchard (rás og skýringar hjá Lulurobs)
- Simon Williams
- Keti Tsatsalashvili
Efni frá mótshöldurum:
- Heimasíða mótsins
- Instagram Skáksambandsins
- TikTok Skáksambandsins
- Twitter/X Reykjavik Open
- Facebook síða mótsins
Annað:



















