Annar keppnisdagur af þremur fór fram í dag í alþjóðlegri unglingakeppni, 13. ChessMates mótinu. Tvær umferðir voru tefldar í dag og úrslit réðust í riðlunum tveimur. Íslenska liðið komst áfram í úrslitariðil eftir ágætis dag. Lið Venezia lá í valnum en viðureignin við Rotterdam tapaðist með minnsta mun. Ísland fer áfram úr B-riðli í úrslitariðil ásamt Rotterdam þar sem liðið mun kljást við Eista og Sachsen-Anhalt sem urðu hlutskörpust í A-riðli.
Ísland – Venezia 7-3
Fínn sigur sem tryggði liðið áfram þar sem hagstæð úrslit í viðureign Íra og Rotterdam þýddi að liðið var öruggt áfram eftir fyrri viðureign dagsins.
U20

Aftur gekk vel á U20 borðunum tveimur og þeir félagar úr Taflfélagi Reykjavíkur Ingvar Wu og Benedikt Þórisson unnu báðir sínar skákir. Keppnisreynslan svo sannarlega að skila sér á þessum borðum.
Skemmtileg lok hjá Ingvari
Svartur lék 31…gxh5?? 32.Bh4+ Rf6 33.Bxf6#
Benedikt var einnig klassa betri en sinn andstæðingur.
U18

Markúsarnir unnu báðir Markús Orri Óskarsson er að tefla eins og herforingi og vann annan auðveldan tæknilegan sigur í 1.d4.
Markús Orri Jóhanns var lengst af í erfiðri vörn en sneri á andstæðing sinn og sigldi vinningnum heim í endataflinu.
U16
Josef gerði jafntefli í sinni skák, stöðubaráttuskák með nokkrum þyngslum. Guðrún Fanney vann sigur með svörtu í caro-kann, sýndi mikla seiglu og baráttuvilja og kreysti sigur úr litlu.
U14

Birkir gerði jafntefli í sinni skák eftir harða baráttu. Birkir var fyrst peði yfir en var svo orðinn peði undir í endatafli en náði nægjanlegu spili til að halda skiptum hlut. Emil varð að lúta í dúk, tefldi skákina vel framan af en missti af taktískri vörn hjá andstæðingnum sem sneri taflinu.
U12

Upp og niður hér, Pétur vann en Dagur tapaði sinni skák.
Úrslit 2. umferðar
Fínn sigur en mikilvægast að liðið er komið áfram!
Ísland – Rotterdam 4,5-5,5
Tap með minnsta mun í viðureign þar sem mjótt var á mununum í mörgum skákum!
U20
Ingvar gerði traust jafntefli með svörtu en Benedikt tapaði sinni fyrstu skák. Benedikt virtist standa vel en andstæðingur hans sem hafði gefið drottningu fyrir hrók og létta náði að virkja liðsafla sinn og byggja mátnet og fyrsta tap Benedikts staðreynd.
U18

Góður dagur hjá nöfnunum í U18 en þeir voru taplausir í dag. Markús Orri Óskarsson hélt áfram að tefla eins og herforingi og lagði sinn andstæðing að velli með svörtu.
Nafni hans Jóhannsson fékk mjög vænlega stöðu með a3 sikileyjarvörninni hans VignirVatnar.is en vantaði herslumuninn upp á að klára…jafntefli niðurstaðan.
U16

Tvöfaldur sigur í hús í þessari umferð í U16, þéttleikinn sem mátti eiga von á fyrir mót. Guðrún tók þetta á seiglunni eins og venjulega, var kannski um of svartsýn á eigin stöðu en tefldi hana vel peði undir og vann skiptamun, eftir það var eftirleikurinn auðveldur. Slúttið var nett eftir 39…Dxe3 40.Hxf7+ Kh6
41.g5!! Dxg5 42.Hxh7+ skemmtileg taktík (sumir kalla hana rook-force-divorce)
Josef slátraði sínum andstæðingi, sýndi miklu meiri reynslu og skilning á kóngsindverjanum.
U14

Birkir gerði jafntefli í sinni skák, andstæðingur hans með hvítt sóttist ekki eftir miklu og lítið við því að gera. Emil tapaði sinni skák en þar var um hörkubaráttu að ræða og á tímabili átti Emil bombu sem hann missti af.
Hér kom 32.Kf2 og taflið er jafnt og tvísýnt…þess í stað var 32.Hxd8+! öflugur en eftir 32…Kxd8 33.Ha8-Kc7 34.Hxh8 Hxh8 35.Dg7+ og hrókurinn á h8 fellur.
U12

Báðir keppendur í U12 töpuðu í þessari viðureign. Pétur gerði í raun allt rétt, fékk betra tafl og yfirspilaði andstæðing sinn en einhvern veginn hélst hvíta staðan á floti þrátt fyrir að hvítur gerði í raun ekkert til að eiga það skilið. Heppnistaktík datt svo á borðið hjá hvítum og vægast sagt ósanngjarnt tap hjá Pétri sem hefði snúið viðureigninni á hinn veginn!
Dagur náði sér ekki á strik í seinni skák dagsins og varð að lúta í dúk.
Úrslit 3. umferðar

Tap með minnsta mun eilítið svekkjandi!
Viðureign morgundagsins:
Á morgun mætir Ísland sveitum Eistlands og Sachsen-Anhalt héraðsins í Þýskalandi. Fyrri viðureignin klukkan 09:00 að staðartíma er við Sachsen og sú seinni 14:00 gegn Eistum.
Úrslitariðillinn á chess-results -> Úrslitariðill
Annað kvöld er svo kvöldverður fyrir krakkana og hraðskákmót fyrir þá sem vilja.
Fylgstu með!
- Heimasíða ChessMates
- Chess-Results
- Beinar útsendingar aðeins 2 efstu borð (u20) í hverri viðureign eru í beinni.

Fyrirkomulag:
- 5 umferðir: Tveir riðlar. Tvö efstu liðin i hvorum riðli tefla um verðlaunasæti. Hin liðin keppa um 5.-8. sæti.
- Tímamörk: 90 mínútur + 30 sekúndna viðbót á leik.
- Allar umferðir í Casa di Soci í Mónakó
Hversu oft hefur Ísland tekið þátt?
Ísland tekur nú þátt í þriðja skipti. Fyrst í áttunda mótinu á Írlandi árið 2023 og svo aftur í því tólfta York í Englandi árið 2025. Ísland mun haldið mótið árið 2027.
Mótið er frábært tækifæri fyrir Ísland til að gefa fleiri ungmennum tækifæri á að tefla fyrir Íslands hönd á hverju ári.
Hverjir tefla fyrir Ísland?
Ísland er sjötta sterkasta liðið á pappírnum.
Forsvarsmenn Chessmates um mótið:
“ChessMates International is about more than individual skill — it’s about teamwork,
cultural exchange, and building friendships across borders.”
— Jurriaan Kien, Forseti ChessMates og hugmyndasmiður.
“Hosting this event in Monaco continues the Principality’s proud tradition of supporting
international sports events, particularly chess, while celebrating youth cooperation and
team competition.”
— Jean-Michel Rapaire, forseti skáksambands Mónakó.


















