Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið hélt áfram á áætlun í Hörpu í dag þegar 2. umferð fór fram, fyrri umferð af tveimur sem var á dagskrá í dag. Mótshaldarar ákváðu eftir fundarhöld að halda sínu striki og veðja á að veðrið væri í raun verst meðan á umferðinni stóð. Reyndist þetta byrjanaval standast öll tölvumöt og var mæting í morgunumferðinni eftir því, allir mættu til leiks að undanskildum einum skákmanni!

Vignir Vatnar hélt áfram góðri byrjun og lagði andstæðing sinn að velli í góðri skák, þakkaði þar að mestu aðstoðarmanni sínum Birki Ísak Jóhannssyni sem hjálpaði honum vel við undirbúning þessarar skákar. Vignir fékk gott frumkvæði og fórnaði peði. Í kjölfarið má segja að leikirnir hafi nánast flætt hjá svörtum á meðan að hvítur var í miklum vandræðum. Fín skák hjá Vigni!
Tveir Íslendingar tefldu á sviðinu. Bragi Þorfinnsson atti kappi við Rúmenann Deac fyrrum sigurvegara Reykjavíkurmótsins. Deac fann skemmtilega leið í miðtaflinu:
25.Rxc6! virðist tapa manni eftir 25…Hxb6 26.cxb6 Bxc6 en Deac hafði séð lengra og lék 27.Hc1! og vann manninn strax til baka. Deac missti reyndar af nákvæmasta framhaldinu, að skjóta inn drápi á e5 áður en hann lék Hc5. Bragi átti engu að síður séns.
33…Hc8?? var tapleikurinn. Svartur er á lífi eftir 33…Bb5!! með hugmyndinni 34.b7 Ba6! og svartur getur svarað 35.Ba7 með 35…Bxb7 og svo hent biskupunum á tein á 7. reitaröðinni!
Fleiri Íslendingar voru í beinni, Dagur Ragnarsson lenti of snemma í passífri stöðu og varð að lúta í dúk gegn Aryan Tari og Aleksandr Domalchuk-Jonasson tapaði gegn bandarískum stórmeistara í kóngsindverjanum.
33…Re5! var skemmtileg lokastunga hjá Jianchao Zhou.
Björn Þorfinnsson náði sér ekki á strik gegn Levon Livaic en segja má að nafni hans Björn Hólm Birkisson og tvíburabróðir hans Bárður Örn hafi haldið uppi heiðri Íslendingana á sýningarborðunum en þeir gerðu báðir jafntefli gegn stigahærri andstæðingum þrátt fyrir að standa höllum fæti. Seigir tvíburarnir!
Guðmundur Kjartansson gerði jafntefli en Mikael Bjarki Heiðarsson náði ekki að fylgja eftir góðum sigri í gær og varð að lúta í dúk.
Flestir af stigahæstu skákmönnum mótsins unnu sínar skákir að undanskildum Maxime Lagarde sem sætti sig furðu fljótt við jafntefli.
Vignir er með fullt hús vinninga en aðeins tveir aðrir íslenskir skákmenn ná því en það eru þau Iðunn Helgadóttir sem vann góðan sigur gegn skákmanni með yfir 2100 elóstig og auk þess hinn efnilegi Pétur Úlfar Ernisson.

Seinni umferð dagsins hefst klukkan 16:00. Skákskýringar hefjast klukkan 18:00 og verða í umsjón Hilmis Freys Heimissonar.
Another beautiful day in Reykjavik 🌞 @ReykjavikOpen pic.twitter.com/jY1cQvDDol
— Simon Williams (@ginger_gm) March 26, 2026
Hægt er að nálgast skákir á:
Streymarar:
- Hannah Sayce
- Tamara Kadovic
- Matthew Perchard (rás og skýringar hjá Lulurobs)
- Simon Williams
- Keti Tsatsalashvili
Efni frá mótshöldurum:
- Heimasíða mótsins
- Instagram Skáksambandsins
- TikTok Skáksambandsins
- Twitter/X Reykjavik Open
- Facebook síða mótsins
Annað:




















