FIDE birti ný alþjóðleg skákstig í dag 1. apríl 2026. Góður mánuður fyrir Breiðablik sem eiga stigahæsta skákmanninn, þá þrjá sem hækkuðu mest og duglegustu skákmenn mánaðarins kepptu á Alþjóðlega Kópavogsmótinu.
Stigahæstu skákmenn og konur
Vignir Vatnar Stefánsson (2512) hækkaði um eitt stig í mánuðinum og er enn stigahæsti skákmaður landsins. Fáir aðrir á topp 20 listanum hækkuðu.
Lenka Ptácníková (2122) er stigahæst skákkvenna eftir að Olga Prudnykova datt útaf lista því 12 mánuðir eru liðnir frá síðustu kappskák hjá henni.

Ungir og gamlir
Mars var góður mánuður hjá ungum skákmönnum en eins og listinn hér fyrir neðan náðu margir þeirra góðri hækkun. Benedikt Briem (2262) er hæstur en næstu tveir menn náðu líka góðri hækkun.
Á vizkualdrinum, eins og kannski má búast við, lækkuðu flestir örlítið í mánuðinum en Héðinn Steingrímsson (2502) er enn hæstur þar.

Breyting
Þrír Blikar hækkuðu mest í mánuðinum en Mikael Bjarki Heiðarsson (1994) hækkaði mest eða um 69 stig.
Flestar skákir
Það kemur kannski ekki á óvart að duglegustu kappskákmenn landsins tóku bæði þátt í Íslandsmóti skákfélaga og Alþjóðlega Kópavogsmótinu og náðu því 14 skákum.
Nýir á lista
Tveir skákmenn koma nýir inn á lista eftir mánuðinn, Þröstur Þórsson með 1823 stig og Jón Fenrir Ragnarsson með 1427 stig.

















