Skráning er hafin fyrir Vestfjarðamótið í skólaskák. Mótið verður haldið af Skákfélagi Vestfjarða í Edinborgarhúsinu á Ísafirði þriðjudaginn 14. apríl á milli 15-18. Þátttökurétt hafa allir nemendur í vestfirskum grunnskólum.
Keppt er í þremur flokkum: 1.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur. Tefldar verða 4-8 umferðir með tímamörkunum 5+3 eftir þáttöku í hverjum flokki.
Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin og sigurvegarar hvers flokks vinna sér inn þátttökurétt á Landsmótinu í skólaskák í Ólafsvík aðra helgina í maí.
*Mikilvægt þátttökuskilyrði fyrir keppendur er að kunna helstu skákreglur, geta teflt sjálfstætt með klukku og að sýna góða og jákvæða hegðun á skákstað.
Mótið hentar ekki fyrir algjöra byrjendur.
Foreldrum/forráðamönnum er velkomið að mæta með sínum krökkum.
Skráningarform: https://forms.gle/4szyuNkiTA9ZNkwN9
Skráningarfrestur er til og með 10. apríl
- Auglýsing -

















