Landsmótsmeistararnir 2025: Pétur Úlfar, Mikael Bjarki og Birkir.

Skáksamband Íslands uppfærði fyrir skemmstu reglugerð um Landsmótið í skólaskák. Hafa kjördæmamótin verið endurvakin að mestu í fyrri mynd. Eins og er stefnir í að kjördæmamót verði haldin í átta kjördæmum en slíkt hefur ekki gerst í a.m.k. 10-15 ár.

Flokkar á kjördæmamótum og landsmótinu 2026. Á öllum kjördæmamótum og síðan á landsmótinu er teflt í þremur aldursflokkum.

  • 1.–4. bekkur
  • 5.–7. bekkur
  • 8.–10. bekkur

Staða og dagsetningar kjördæmamótanna 2026:

  • Vesturland: Laugardaginn 21. mars í Fjölbrautaskóla Snæfellinga (1 keppandi á Landsmót) – úrslit
  • Kraginn og Suðurnes: Fimmtudagurinn 9. apríl í Miðgarði í Garðabæ (3 keppendur)
  • Suðurland: Fimmtudaginn 9. apríl á Flúðum (1 keppandi)
  • Norðurlanda eystra: Föstudaginn 10. apríl á Akureyri (1 keppandi)
  • Reykjavík og Seltjarnarnes: Mánudaginn 13. apríl í Taflfélagi Reykjavíkur (3 keppendur)
  • Vestfirðir: Þriðjudaginn 14. apríl á Ísafirði (1 keppandi)
  • Norðurlanda vestra: Miðvikudagurinn, 15. apríl í Húnaskóla (1 keppandi)
  • Austurland: Sunnudaginn 19. apríl á Egilsstöðum (1 keppandi)

Mótin verða kynnt í viðkomandi kjördæmum á næstu dögum og vikum. Sendir verða tölvupóstar á forráðamenn skákfélaga og til skóla.

Landsmótið 9.-10. maí í Klifi, Ólafsvík Á landsmótinu verður keppt í sömu þremur flokkum (1.–4. b., 5.–7. b. og 8.–10. b.) og krýndir Íslandsmeistarar skólaskák í hverjum flokki.  Alls tefla 12 keppendur í hverjum flokki.

- Auglýsing -