Landsliðskonan Guðrún Fanney Briem tefldi tvöfalda umferð í dag á alþjóðlegu opnu móti í Alicante en önnur og þriðja umferð voru tefldar í dag. Guðrún hefur mætt sterkum andstæðingum, vann alþjóðlegan meistara í gær og fékk hálfan af tveimur í dag gegn andstæðingum með rétt tæp 2300 meðalstig, Guðrún má vel við una. Halldór Halldórsson tekur einnig þátt á mótinu en tók sér hjásetu í morgunumferðinni. Þrír tvöfaldir dagar eru á mótinu.
Í fyrri umferð dagsins hafði Guðrún hvítt gegn FM Serarols Mabras Bernat (2271) og skildu þau jöfnu. Í seinni skákinni laut Guðrún í dúk gegn FM Valentin Mitev (2302).
Halldór tapaði gegn spænskum kandídatameistara í alvöru CM-uppgjöri í 3. umferðinni.
Pörun er ekki komin í 4. umferð en tvöföld umferð er á morgun.


















