Úzbekinn Javokhir Sindarov hélt áfram magnaðri sigurgöngu sinni á Áskorendamótinu en hann lagði Hikaru Nakamura að velli með svörtu mönnunum í dag. Fabiano Caruana vann einnig sína skák og Áskorendamótið virðist ætla að verða barátta þessara tveggja um efsta sætið. Einungis þriðjungur er búinn af mótinu og enn getur allt gerst en línur virðist samt þó nokkuð skýrar. Í kvennaflokki eru nú þrjá skákkonur á +1 þær Jiner, Muzychuk og Lagno.

Kíkjum fyrst á opna flokkinn.

Nakamura – Sindarov

Sindarov náði í enn einn sigurinn og lagði aftur heimsklassa skákmann að velli með svörtu mönnunum. Þessi úrslit gera það nánast að verkum að möguleikar Nakamura eru allt að því úr sögunni!

Teflt var hvasst afbrigði í semi-slavanum, Marshall gambíturinn. Báðir þekktu fyrstu leikina en Sindarov kom fyrstur á óvart með 12…0-0!? í stöðu þar sem 12…e5 eða 12…Rf5 eru eini leikirnir sem hafa verið tefldar á háu leveli. Nakamura brást ekki vel við og missti jafnt og þétt tökin og greinilega að Sindarov þekkti stöðuna vel og eftir betur heppnaðan undirbúning fylgdi einnig tímaforskot. Nakamura átt í raun aldrei séns!

Hikaru var ekki lengi að henda aðstoðamönnum sínum undir strætóinn! Leikurinn 12…0-0!? var ekki í skrám hans sem hann notaði í undirbúning og eins og svo margt annað þá er það auðvitað ekki honum að kenna!

Caruana – Bluebaum

Fabiano náði að halda í við Sindarov með því að verða fyrstur til að leggja Bluebaum að velli. Bandaríkjamaðurinn var greinilega tilbúinn með heimabrugg til að valda Þjóðverjanum vandræðum í Petroffs-vörninni og gerði það svo sannarlega. Snaggaraleg sókn og mát í 28. leik!

Öðrum skákum í opnum flokki lauk með jafntefli en staðan er nánast að verða þannig að einungis skákir Sindarov og Caruana skipta máli.

Kvennaflokkur:

Zhu Jiner – Vaishali

Zhu Jiner hélt áfram að rétta úr kútnum og hefur nú náð efstu konum eftir tvær sigurskákir í röð eftir klaufalega byrjun. Hún yfirspilaði Vaishali gjörsamlega stöðulega og saumaði að henni jafnt og þétt í anda Capablanca.

Lagno – Bibisara

Lagno komst á toppinn með því að leggja Bibisara að velli. Stöðuleg skiptamunfórns svarts virtist einfaldlega ekki ganga upp í þessari skák og Lagno með stjórn á öllu mestmegnis.

Staðan:

Tenglar:

Um mótið:

Kandidatamót FIDE fara fram á Kýpur, bæði í opna flokknum og kvennaflokki. Mótin eru lokastig í baráttunni um það hver fær að skora á heimsmeistarana í klassískri skák. Keppt er með átta keppendum í hvorum flokki, tvöfaldri umferð, allir við alla (round-robin). Alls eru tefldar 14 umferðir, og stendur dagskráin frá 29. mars til 15. apríl með hvíldardögum inn á milli. Bráðabanar fara fram 16. apríl ef þörf er á!

Í opna mótinu eru meðal keppenda Fabiano CaruanaHikaru Nakamura og Anish Giri ásamt mönnum á borð við Wei YiPraggnanandhaa RJavokhir SindarovAndrey Esipenko og Matthias Bluebaum, og sigurvegarinn fær réttinn til að tefla um heimsmeistaratitilinn gegn Gukesh Dommaraju síðar á árinu.

Í kvennaflokki er baráttan ekki síður hörð, með nöfnum eins og Zhu JinerTan ZhongyiAleksandra Goryachkina og Kateryna Lagno í fremstu röð, og sigurvegarinn fær að skora á heimsmeistarann Ju WenjunAnna Muzychuk kom inn í mótið sem varamaður eftir að Koneru Humpy dró sig út.

- Auglýsing -