Landsliðskonan Guðrún Fanney Briem tefldi annana tvöfaldan daginn í röð í dag og því hafa verið tefldar alls fimm umferðir á alþjóðlegu opnu móti í Alicante þar sem Guðrún tekur þátt ásamt CM Halldóri Halldórssyni.
Guðrún byrjaði mótið mjög vel með því að ná úrslitum upp fyrir sig og hefur því fengið mjög þétt og stíft prógram af stigahærri andstæðingum í öllum umferðum. Í fyrri umferð dagsins hafði Guðrún hvítt gegn Eliot Burgalat (2242). Merkilegt nokk mættust þau með skiptum litum á Reykjavíkurskákmótinu 2025 og þá skildu þau jöfn.
Í dag hafði Guðrún hvítt og beitti afbrigði gegn sikileyjarvörn sem hún lærði að sjálfsögðu á VignirVatnar.is og hafði skoðað fyrir nokkrum mánuðum og mundi vel! Allt gekk upp í þessari skák, allt að því módelskák í afbrigðinu og Eliot fékk ekki andrými í þessari skák, fínn sigur!

Í seinni umferð dagsins tapaði Guðrún gegn sterkum ungum ítölskum FIDE-meistara Stefano Maldonado Gonzales (2267) með svörtu.
Halldor hvíldi í morgunumferðinni en hefur vafalítið stúdera franska vörn á meðan, rifja-uppstillinguna.

Í seinni umferð dagsins laut Halldór í dúk gegn ungum Spánverja og við minnum á grein Halldórs í Tímaritinu Skák…skák á ekkert endilega að vera skemmtileg!
Ein umferð er á morgun, 6. umferð og þar er pörunin Guðrún Fanney Briem (2032) hvítt gegn Stephan Bukharov (2196) og Halldór Halldórsson svart á sólina.


















