Fjórða umferð á Evrópumóti einstaklinga í Katowice í Póllandi lauk nú fyrir skemmstu. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson vann góðan sigur og hefur 3,5 vinning af 4 mögulegum. Hannes Hlífar Stefánsson slapp með skrekkinn í erfiðu endtafli og náði jafntefli en þeir Hilmir Freyr Heimisson og Josef Omarsson töpuðu sínum skákum.
Vignir hafði hvítum gegn enn einum pólska skákmanninnum, FIDE-meistaranum Piort Kejna (2311). Tefld var Bogo-indversk vörn og mótaðist taflið mjög snemma af 17. leik hvíts 17.c6
Tölvumatið er 0.00 hér eins og svo oft áður. Hinsvegar er c6 peðið ákveðið tromp sem getur haft stór áhrif í mörgum endatöflum, varð það og raunin!
Vignir þjarmaði að andstæðingnum með meira rými og smátt og smátt missti svartur tökin. Vignir gat svo skipt upp á drottningum þegar leiðin var orðin greið fyrir kóng hans að fylgja c-peðinu upp í borð!
Fín úrslit hjá Vigni sem hefur 3,5 vinning af 4 mögulegum.

Hannes Hlífar hafði svart gegn pólskri WGM, Michalina Rudzinska (2204). Sú pólska hafði lengst af betra tafl gegn caro-kann en Hannes komst inn í skákina en lenti í aðeins verra endatafli. Þá tók við kafli þar sem keppendur skiptust á að finna „rauða leiki“ og skákin skiptist á að fara úr unnið á hvítt í jafnt tafl.
Síðast séns hvíts var hér. 53.Rf6?? var leikið sem missir taflið í jafnteflið eins og skákin tefldist og 56…f6! þar lykilleikur. Hér hefði hvítur getað leikið einfaldlega 53.Rxg5xf7-d8-c6 og taflið er kex-unnið á hvítt. Vel sloppið hjá Hannesi.
Hilmir mætti alþjóðlegum meistara frá Ísrael. Hilmir fórnaði peði fyrir bætur en missti af mótspili hjá andstæðingnum í miðtaflinu þegar hann hélt að hann væri að fá mun betri stöðu. Sá ísraelski var svo seigari í flækjunum og nældi í sigurinn.

Josef tapaði sinni skák gegn reyndum skákmanni frá Kósóvó. Svarta kóngsstaðan varð alltof veik og kóngssókn hvíts eiginlega tefldi sig sjálf.
Í fimmtu umferð hefur Vignir hvítt gegn Evrópumeistaranum 2024, Aleksandr Indjic, hörkuskákmaður sem lagði Hannes í 2. umferð. Fimmta umferðin er tefld á sunnudaginn, frídagur á morgun laugardag.
Um mótið:
Evrópumót einstaklinga fer fram í Katowice í Póllandi 7-19. apríl en teflt er á hverjum degi en frídagar 11. og 17. apríl. Tefldar eru 11 umferðir um Evrópumeistaratitilinn og jafnframt sæti á Heimsbikarmótinu, mikið í húfi. Sætin eru eftirsótt þar sem Heimsbikarmótið er ávallt eitt vinsælasta mótið þegar það fer fram (annað hvert ár) og jafnframt getur það verið leið til að komast á Áskorendamótið (sem er nú í gangi).
Alls taka 501 skákmenn þátt á mótinu og eru íslensku keppendurnir fjórir. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2512) er númer 74 í stigaröðinni, GM Hannes Hlífar Stefánsson (2414) er númer 154 í stigaröðinni, IM Hilmir Freyr Heimisson (2297) er númer í 256 stigaröðinni og Josef Omarsson (2045) er númer 400 í stigaröðinni. Stigahæstur er Igor Kovalenko (2685) frá Úkraínu.
Íslensku keppendurnir eru (sjá myndband):
View this post on Instagram















