Björn Ívar skiptir öllu máli þegar kemur að skákferðum!

Í dag hófst Norðurlandamót stúlkna í Vestby,Noregi!

10 stúlkur hefja leik!

B-flokkur (16 ára og yngri)
Guðrún Fanney Briem (2032)
Emilía Embla B. Berglindardóttir (1622)
Sigrún Tara Sigurðardóttir (1483)
Emilía Sigurðardóttir (1464)

C-flokkur (13 ára og yngri)
Harpa Hrafney Karlsdóttir (1585)
Halldóra Jónsdóttir (1568)
Katrín Ósk Tómasdóttir (1445)
Miroslava Skibina (1443)
Emilía Klara Tómasdóttir (0)
Likhitha Sri Sathiyaraj (0)

Ferðasaga-

Gæti verið grein í Tímaritinu Skák en Gauti er að prenta!

Björn byrjar að stúdera strax á flugvellinum með stelpunum!

Halldóra, Miroslava og Guðrún tóku forskot á sæluna og flugu út á fimmtudaginn. Mikilvægur partur að greina aðstæður hvar sé hægt að borða og njóta.
Hinar lögði því af stað klukkan 7:50 á föstudagsmorgni en spólum aðeins til baka.
Þegar lagt er af stað í skákferð er mikilvægt að taka með landsliðsbúninginn en þá hafði Guðrún Fanney gleymt sínum á Íslandi eftir að hafa farið degi á undan. Nú eru góð ráð dýr ef eitthvað skiptir máli þá er það liðsmyndin sem verður næsta cover mynd á FB á Íslenskum skákmönnum! Kemur ekki Stephan Briem til bjargar og lætur undirritaðan hafa búninginn, Briem fjölskyldan stendur saman!

Abbey Road á Burger King

Eftir þægilegt flug til Osló var mætt á Vestby Park Hotel þar sem nýtt landsmet er sett því check-in á hótelið er 2km frá hótelinu sjálfu. En frábært hótel samt sem áður, flestir á sömu hæð enda þekkja þeir sem hafa farið í skákferð með Birni Ívari að stúdera með honum inná hans hótelherbergi getur verið munurinn á sigri eða tapi!

Ætla ég að hrósa skákstaðnum sérstaklega Vestby Kulturkvartal er frábær fyrir bæði keppendur og foreldra. Boðið er uppá veitingar fyrir alla keppendur sem hægt er að sækja sér á meðan umferð stendur. Einnig er flott svæði fyrir foreldra til að njóta lífsins í 4 klukkutíma með veitingum og þjónustu mjög nálægt.

Norðurlandamótið sett!
Guðrún Fanney kom sá og sigraði

En að skákinni! Ætla quote-a Guðrún Fanney Briem „hef aldrei mætt andstæðing sem er jafn undirbúinn“ en það kom ekki að sök. Guðrún var betur undirbúin og sigraði! Andstæðingur drap með hrók og Guðrún gaf enga sénsa eftir þetta!

Harpa Hrafney Karlsdóttir var í köðlunum í þessari stöðu en skák er „game of margins“ og eftir Kf8 féll hrókurinn og glæsilegur sigur í höfn!

Eina innbyrðis viðureignin var Halldóra Jónsdóttir gegn Emilíu Klöru Tómasdóttir eftir jafnt tafl framan af sýndi reynslan sig og sigraði Halldóra.

Það er ekki gaman að mæta Íslending á NM en sigur er samt alltaf betra

Harpa, Halldóra og Guðrún sigruðu í dag, aðrar töpuðu en það segir ekki nema hálfa sögu!

Mikilvægi Björns Ívars Karlsonar í svona ferðum gerir allt! Margir halda að hann sé bara skákþjálfari fyrir ferðina?!

Nei heldur betur ekki, hann passar að allir komist á leiðarenda sannkallaður fararstjóri, hann er allan tímann á svæðinu tekur á móti öllum hvort sem þeir vinna eða tapa og fer yfir skákina með þeim algjör forréttindi fyrir stelpurnar að hafa hann sem þjálfara í þessari ferð! Einnig er hann tilbúinn að vakna fyrir allar aldir bara svo stelpurnar geti fengið þó það sé ekki nema 5 mínútur fyrir skák sem byrjar snemma daginn eftir! Hann veit að allar skákir skipta máli!

 

Björn Ívar fer yfir skák með Hörpu

Ljósmyndir frá 1.umferð má sjá hér

_D0A9457

Hægt að sjá allar skákir hér https://lichess.org/broadcast/nordic-girls-chess-championship-2026-group-c/round-1/BlSDyrEN/mS7To8DI

2.umferð Laugardag! kl 08:00 á íslenskum tíma

 

 

- Auglýsing -