Íslenka liðið í 65+ flokkunum á Heimsmeistaramóti öldungasveita í Durres í Albaníu datt úr toppsætinu eftir dramatíska jafnteflisviðureign gegn Rússum (teflt undir FIDE fána). Þýska sveitin með Jusupow í fararbroddi skaust í efsta sætið og þarf nú hagstæð úrslit í erfiðri lokaumferð. Íslenska liðið í 50+ flokknum gerði fínt jafntefli við sterkt ítalskt lið og Vestfirska liðið lagði spænska sveit að velli.

65+ flokkur

Þorsteinn hvíldi í dag en liðið mætti Rússneskri sveit teflandi undir FIDE fánanum

Fyrsta skákin til að klárast var hjá Jón L. á fyrsta borði. Liðsafli jafn en mögulega hefur Jón vanmetið eigin stöðu sem tölvurnar telja þægilega betri á svart.

Staðan í viðureigninni 0.5-0.5 hér en þá þegar var Áskell kominn með mjög erfiða stöðu. Í ljósi þess er spurning hvort Jón hefði átt að halda taflinu gangandi.

Áskell hafði hvítt en náði ekki nógu markvissu plani gegn grjótagarðsuppstillingu svarts. Hvítur endaði með hálfgerða Czech Benoni peðastöðu en án hryggjarstykkis, peð á d3 að valda keðjuna. Taktískar aðgerðir hvíts í kjölfarið gengu engan veginn upp og Rússinn með allt á hreinu.

Staðan nú 0.5-1.5 fyrir Rússana. Í hönd fór spennandi kafli. Íslendingarnir höfðu betri stöður á efstu tveimur borðum. Ljóst að sigur í viðureigninni væri vænlegust til að eiga séns á gullinu. Rússarnir höfðu hinsvegar ekki tapað einni einustu skák fram að þessu á mótinu!

Margeir hafði hvítt gegn Raetsky, traustum rússneskum stórmeistara sem tefldi oft á Íslandi fyrir aldamótin, t.d. á Guðmundar Arasonar mótunum. Margeir þjarmaði að Raetsky og fékk gott færi hér…

37.Dd2! er skemmtilegur leikur. Hugmyndin er að eftir t.d. 37…Bb3 kemur 38.e4! og svarta staðan er að hruni komin. Hér er að vísu smá drullusvað á ferðinni og auðveldara að hafa tölvur sér við hlið. T.d. 38…Rxe4 39.f3! o.s.frv.

Að því sögðu hélt Margeir fullkomnri stjórn á stöðunni og betri tíma og Raetsky bognaði að lokum undan stöðugri stöðulegri pressu.

Staðan orðin 1.5-1.5 og spennan óbærileg. Helgi hafði yfirspilað andstæðing sinn í miðtaflinu í sikileyjarvörn og unnið peð af andstæðingi sínum. Í hönd fór hinsvegar æsispennandi kafli þar sem hróksendataflið sveiflaðist úr vinningi á svart í jafntefli, til baka oftar en hægt er að telja og svo var hvítur að vinna og aftur jafntefli og öfugt og í hringi!

Fram að þessu hafði Helgi teflt mjög vel og unnið peð með skemmtilegum tilfærslum. Hér hefði 37…dxe5 líklegast verið vænlegast til vinninga. Peðin á a5 og e5 falla í kjölfarið og svarti kóngurinn kemst á skrið. Endataflið ætti að vera unnið. Eftir gerðan leik 37…d5?! er úrvinnslan aðeins erfiðari en þó betra á svartan. Úrvinnslan í kjölfarið fór aðeins í súginn og hvítur kominn með jafnt tafl á pappírnum og fann réttu leiðina, fórna peðum og koma hvíta kóngnum inn. Hvítur missti þó aðeins þráðinn en þá kom ein sveiflan til.

52…Hg6? tapaði heilu tempói þar sem 53.Ke7 var svarað með 53…Hg5. Hér hefði 52…Hg5! strax verið vinningsstaða á svart.

Sveiflurnar héldu áfram..hvítur áfram með unnið en varð að finna rétta leikinn hér með lítið á klukkunni:

61.c3 fann Rússinn því miður og hvítur stendur til vinnings…í allavega einn leik því eftir 61…d4 kom 62.c4?? sem skilar taflinu aftur í jafntefli…á pappírnum! Eftir 62…Kf6 63.c5 þarf svartur að finna „only move“

63…He3?? var ekki sá leikur. Hér hefði 63..Ke5! bjargað taflinu þar sem við getum fórnað hróknum og svarti kóngurinn er nógu nálægt d-peðinu til að styðja það upp.

Dramatíkin hélt áfram…

Hér á Rússinn smekklegan vinning með 66.Hf5! og hægt er að gefa skákina…reyndar myndu flestir berjast með hrók gegn drottningu en staðan er unnin á hvítt. Í staðinn kom 66.c7?? og menn gátu andað léttar.

Úrslit:

Niðurstaðan 2-2 jafntefli, svekkjandi í ljósi þess að sigur var í kortunum og þá hefði sveitin mætt Þjóðverjum í hreinni úrslitaviðureign.

Íslenska liðið er nú í öðru sæti á oddastigum og Þjóðverjar orðnir efstir

Í lokaumferðinni mætir íslenska sveitin liði Englendinga með goðsögnina John Nunn á efsta borði. Þjóðverjarnir mæta Slóvökum á meðan. Leiðin að gullinu felst í því að Slóvakar tapi ekki gegn Þjóðverjum og Ísland leggi Englendinga að velli. Á sama tíma mega reyndar Ítalir ekki fá fleiri borðavinninga í sinni viðureign þar sem þeir eiga innbyrðis á Ísland. Takist þetta nær Ísland gullinu.

50+ flokkur

Lið Íslands í 50+ heldur

Ágúst Sindri hvíldi aftur hjá 50+ liðinu í dag.

Jóhann mætti David Alberto á efsta borði og hafði svart. Alberto þvingaði jafntefli í Spánverjanum. Greinilegt að Ítalirnir töldu sig sterkari á neðri borðum og myndu vinna viðureigna þar.

Hafði fyrsta borðið verið stutt þá var annað borði ekki síðra. Stutt jafntefli líka og greinilegt að Ítalirnir treystu 3. og 4. borði til að vinna viðureignina.

Karl náði góðu baráttujafntefli, náði þráskák í erfiðri vörn.

Rúnar hafði hvítt og greinilegt að Ítalirnir töldu sig líklegri á þessu borði. Rúnar stóð aðeins verr mest alla skákina en aldrei í taphættu. Andstæðingur hans fékk þó reyndar einn séns.

Borgo hefði getað leikið 42..Rd3+ og hvítur er í vandræðum. 43.Kb1 þá 43…Re1 og peðin falla. Ef 43.Bxd3 cxd3 þá fellur peðið á a2. Í staðinn kom 42…Ke5 og Rúnar lenti ekki í frekari vandræðum.

Vestfirðingasveitin unnu sigur með minnsta mun gegn spænskri sveit.

Staðan:

Bandaríkjamenn enn efstir þar íslenska liðið hjálpaði þeim með jafntefli við Ítala. Ísland heldur 4. sætinu en Vestfirðir hoppa í það 9. úr 14. sæti.

Í lokaumferðinni mætir Ísland ofursveit Bandaríkjamanna. Ísland þarf að ná góðum úrslitum þar til að komast á pall. Vestfirðir gætu hjálpað íslenska liðinu þar sem þeir mæta Kazökum sem eru í 3. sæti! Áfram íslensku sveitirnar!

Um mótið:

Heimsmeistaramót öldungasveita fer fram í Durres í Albaníu 19-28. apríl. Tefldar eru 9 umferðir. Ísland teflir fram þriðju stigahæstu sveitinni í flokki 65+ og fimmtu stigahæstu sveitina í flokki 50+. Sveit eingöngu skipuð Vestfirðingum í flokki 50+ er svo ellefta stigahæsta sveitin.

Sveit Íslands í 65+

GM Helgi Ólafsson – 2439
GM Margeir Pétursson – 2387
GM Jón L. Árnason – 2407
FM Þorsteinn Þorsteinsson – 2220
IM Áskell Örn Kárason – 2121

Sveit Íslands í 50+ skipa

GM Jóhann Hjartarson – 2466
GM Þröstur Þórhallsson – 2392
IM Karl Þorsteins – 2404
FM Ágúst S. Karlsson – 2224
FM Rúnar Sigurpálsson – 2236

Sveit Vestfirðinga er skipuð:

FM Guðmundur Gíslason – 2251
CM Magnús P. Örnólfsson – 2163
FM Halldór Grétar Einarsson – 2173
CM Guðmundur Halldórsson – 2105

- Auglýsing -