Íslenka liðið í 65+ flokkunum á Heimsmeistaramóti öldungasveita í Durres í Albaníu tryggði sér í dag bronsið eftir enn eina spennuviðureignina. Ísland gerði jafntefli við Englendinga eftir að hafa staðið höllum fæti lengst af. Þjóðverjar tóku gullið og Ítalir skutust upp fyrir íslenska liðið og hirtu silfrið. Íslenska liðið í 50+ flokknum náði ekki á pall en þeir gerðu jafntefli við Bandaríkjamenn í rað-friðarsamningum. Kazakar voru of stór biti fyrir Vestfirðinga en þeir lutu í dúk í dag.
65+ flokkur
Áskell hvíldi í lokaumferðinni í dag en liðið mætti Englendingum með John Nunn á efsta borði.

Helgi samdi tiltölulega stutt með hvítu gegn Nunn á efsta borði. Nunn vissulega taplaus og erfiður viðureignar en menn verða heldur ekki heimsmeistarar á að semja með hvítu.

Jón L. var næstur að klára. Staðan var frekar líflaus þegar samið var en þó hefði hvítur alveg getað beðið átekta með riddara í lokaðri stöðu þó taflið sé frekar dautt.
Þegar hér er komið við sögu er staðan 1-1 og vinningar ólíklegir á 2. og 4. borði hjá okkar mönnum sem sátu eftir með svörtu mennina. Kosten gegn Margeiri hefði þó þurft að taka sénsa og menn inni á borðinu, við hefðum þurft smá heppni þar til að eiga séns. Slóvakarnir virtust á sama tíma mögulega ætla að rétta hjálparhönd. Igor Gazik átti nánast vinning „on the spot“ og aðrar stöður þannig að Slóvakar voru þá ekki að tapa.
Hér átti Gazik 25…Ra5! gegn Kalinitschew sem lék af sér í síðasta leik með 25.Rde3? Gazik missti af þessu enda riddaraleikir afturábak oft erfiðir viðureignar eins og menn eins og Ivanchuk hafa oft nefnt.

Það sem gerði stöðuna enn leiðinlegri var að Ítalir voru nú að vinna 3-1 sem var of stór sigur og þeir yrðu ofar íslenska liðinu ef Ísland myndi „grísa“ á sigur úr þessu sem yrði aldrei stærri en 2.5-1.5.
Þorsteinn gerði sitt, hélt öruggu jafntefli með svörtu gegn Littlewood.
Margeir var lengi vel í klemmu gegn Kosten. Veiking g5 reitsins gaf hvítum betra tafl og Margeir þurfti að fórna peði í miðtaflinu. Margeir náði að vinna sig úr stöðunni og bjargaði jafnteflinu og tryggði þar með málminn.
Úrslit:
Niðurstaðan 2-2 jafntefli þriðju slík í röð og hefði eitt af þeim alveg mátt detta í sigur, þá hefði málmurinn verið öðruvísi!
Íslenska liðið endaði því í 3. sæti og náði sér í fínasta málm!

Ítalir komu kannski mest á óvart á mótinu, voru númer 8 í styrkleikaröð en skutust upp fyrir Íslendingana í lokin.

Árangurinn heilt yfir traustur. Helgi tók verðlaun fyrir besta árangur á 1. borði. Margeir og Jón L. mjög traustir og Þorsteinn og Áskell áttu báðir fína spretti á fjórða borðinu sem þeir skiptu með sér að mestu.
50+ flokkur
Lið Íslands í 50+ mætti Bandaríkjamönnum. Bandaríkjamennirnir þurftu bara jafntefli í viðureigninni til að tryggja sigurinn. Það var afgreitt með snöggum hætti og ekki margar mínútur frá fyrsta handabandi við upphaf skákir til þess næsta! Rúnar hvíldi í lokaumferðinni.

Fín úrslit á pappír en enginn málmur að þessu sinni.
Vestfirðingasveitin mætti ofjörlum sínum í sveit Kazaka.

Lokastaðan:
Bandaríkjamenn tryggðu sigurinn með jafnteflinu við Ísland. Ísland endar í 5. sæti, sama og styrkleikaröðunin og Vestfirðir enduðu í 16. sæti.

Lítið hægt að kvarta undan einstaklingsárangri. Flestir heilt yfir að tefla vel og ná góðum úrslitum. Rúnar flottur á varamannsborðinu og virkilega gaman að sjá Karl Þorsteins koma svona sterkan inn eftir langt hlé frá taflmennsku.

Guðmundarnir voru aflakóngar hjá Vestfirðingunum. Gíslason á fyrsta borði gaf aðeins eftir í lokin eftir algjörlega frábæra byrjun.
Þetta heimsmeistaramót heldur áfram að vaxa og dafna og jafnvel má gera ráð fyrir fleiri íslensku sveitum á mótinu á næstu árum!
- Heimasíða mótsins
- Mótið á chess-results 50+ | 65+
- Skákir á lichess 50+ | 65+
Um mótið:
Heimsmeistaramót öldungasveita fór fram í Durres í Albaníu dagana 19.–28. apríl. Tefldar voru 9 umferðir. Ísland tefldi fram þriðju stigahæstu sveitinni í flokki 65+ og fimmtu stigahæstu sveitinni í flokki 50+. Sveit eingöngu skipuð Vestfirðingum í flokki 50+ var svo ellefta stigahæsta sveitin.
Sveit Íslands í 65+ skipuðu
GM Helgi Ólafsson – 2439
GM Margeir Pétursson – 2387
GM Jón L. Árnason – 2407
FM Þorsteinn Þorsteinsson – 2220
IM Áskell Örn Kárason – 2121
Sveit Íslands í 50+ skipuðu
GM Jóhann Hjartarson – 2466
GM Þröstur Þórhallsson – 2392
IM Karl Þorsteins – 2404
FM Ágúst S. Karlsson – 2224
FM Rúnar Sigurpálsson – 2236
Sveit Vestfirðinga skipuðu:
FM Guðmundur Gíslason – 2251
CM Magnús P. Örnólfsson – 2163
FM Halldór Grétar Einarsson – 2173
CM Guðmundur Halldórsson – 2105

















