Fjórða umferð fór fram í dag á EM kvenna sem fram fer í Batumi í Georgíu. Íslandsmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova tapaði sinni skák og hefur 1,5 vinning að loknum fjórum umferðum.
Lenka hafði svart gegn landsliðskonu frá Azerbaijan alþjóðlega meistaranum Gulnar Mammadova (2325). Upp kom Sikileyjarvörn og lenti Lenka snemma í krefjandi stöðu og tímamismun. Lenka náði með seiglu að komast inn í skákina og átti nokkra sénsa á að ná jöfnu tafli en á endanum hafði Gulnar betur og náði mátneti á svarta kónginn.
Fimmta umferð fer fram á morgun en þar mætir Lenka heimakonunni Tamari Esadze (1911) og hefur hvítt. Teflt er á hverjum degi, enginn frídagur.
Alls taka 165 skákkonur þátt á mótinu og þeirra stigahæst er Stavroula Tsolakidou frá Grikklandi. Lenka er númer 102 í styrkleikaröðun á mótinu.

















