Egilsstaðaskóli

Skákskóli Íslands, í samstarfi við Gauta Pál Jónsson skákkennara, stendur fyrir skáknámskeiði á Egilsstöðum sunnudaginn 12. júlí í Egilsstaðaskóla.

Skáknámskeiðið er ætlað fyrir börn í 2.-7. bekk.
Námskeiðið fer fram sunnudaginn 12. júlí í Egilsstaðaskóla og stendur frá kl. 12:00 – 15:30.
Að loknu námskeiðinu fer fram skákmót, Austurlandsmót Skákskólans í hraðskák, sem stendur frá kl. 16:00-18:00.

Dagskrá:

12:00-13:30 – Kennsla og taflmennska
13:30-14:00 –  hlé (boðið er upp á ávexti og djús)
14:00-15:30 – Kennsla og taflmennska

16:00-18:00 – Austurlandsmót Skákskólans í hraðskák

Að loknu námskeiðinu, kl. 16:00, verður Austurlandsmót Skákskólans í hraðskák, sem verður opið mót og reiknað til hraðskákstiga.
Athugið að skákmótið er opið öllum, bæði börnum og fullorðnum.

Skráning í námskeiðið miðast við í minnsta lagi 8 þátttakendur og í mesta lagi við 14. Skráningu verður lokað um leið og 14 hafa skráð sig.

Þátttökugjöld eru kr. 6.000 á mann. Systkinaafsláttur er 25%.
Innifalið í þáttttökugjaldinu er námsefni, bæði prentað og á rafrænu formi ásamt ókeypis þátttöku í Austurlandsmóti Skákskólans í hraðskák.

Skráning á námskeiðið

Nánari upplýsingar veita:
Gauti Páll Jónsson skákkennari
Netfang: gauti.pall.jonsson@reykjavik.is
Símanúmer: 6919937

Björn Ívar Karlsson skólastjóri Skákskóla Íslands
Netfang: bjorn@skaksamband.is
Símanúmer: 6921655

- Auglýsing -