Skákfélagið Goðinn og fjölskylda Sigurðar Daníelssonar standa saman að minningarskákmóti um hann laugardaginn 11. júlí. Minningarskákmótið fer fram í félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn og hefst kl 13:00.
Tefldar verða að lágmarki 7 umferðir og að hámarki 9 umferðir og tímamörk verða 5 mín og 3 sek í viðbótartíma á hvern leik. Umferðafjöldinn fer eftir hve margir keppendur mæta til leiks. Mótið verður opið öllum áhugasömum, ungum sem öldnum og það verður ókeypis í það. Ekki verða veitt nein verðlaun. Mótið verður reiknað til hraðskákstiga hjá FIDE.
Æskilegt er að áhugasamir forskrái sig til leiks, því það auðveldar allt utanumhald.
Að móti loknu verður boðið upp kaffi og kleinur auk tónlistar og söngdagskrá þar sem Elínborg Sigurgeirsdóttir og Vigdís Gigja spila nokkur lög á píanó og þverflautu. Gestir geta tekið einnig tekið þátt í fjöldasöng ef svo ber undir.
Ymisir munir sem voru í eigu Sigurðar sem Skákfélagið Goðinn varveitir, verða til sýnis á meðan á minningarmótinu stendur.

















