Birkir Hallmundarson vann góðan sigur í dag gegn sterkum andstæðingi þegar 9. umferðina fór fram á HM ungmenna en mótið fer fram á Montesilvano á Ítalíu. Í stúlknaflokki U16 tapaði Guðrún Fanney Briem (2026) sinni skák eftir að hafa haft mjög vænlegt tafl. Tvær umferðir eru eftir en 11 umferðir eru tefldar á mótinu.

Guðrún hafði hvítt og mætti tékkneskri stelpu, Daniela Kozusnikova (1812). Upp kom Catalan-byrjun og hafði Guðrún alla stöðuna. Sú tékkneska fór í furðulega framrás f-peðs síns og tapaði liði. Hvítur náði ekki að kæfa mótspilstilburði svarts nægjanlega vel og í tímahraki virkaði spriklið og Guðrún missti tök á stöðunni. Leiðinlegt tap.
Guðrún hefur 3,5 vinning af 9 og mætir stelpu frá Litháen næst Auguste OVCINIKOVA (1733) og hefur svart.

Birkir vann eins og áður sagði sína aðra skák í röð en hann hafði svart gegn Tékkanum Vojtech Velim (2247) en hann er CM. Birkir fékk aðeins verra í byrjuninni, tók á sig laskaða peðastöðu en hafði þó umframpeð. Þegar leið á skákina tók Birkir öll völd, ríghélt í peðið og fékk þægilegra endtafl. Birkir kom svo skákinni á réttan áfangastað og lagði sterkan skákmann og styrkti stöðuna sína á mótinu!
Birkir hefur 5,5 vinning af 9 og mætir Vinuka Dihain WIJERATHNA (2165) frá Sri Lanka í næstu umferð.
Fyrir algjöra tilviljun þá er andstæðingur Birkis einn af viðmælendum í þessu stutta innslagi frá mótinu á Instagram, og andstæðingur Guðrúnar í dag líka!
View this post on Instagram
Birkir er númer 68 í styrkleikaröðinni af 151 keppanda í U14 flokknum.
Svipmyndir úr skáksal:
- Heimasíða mótsins
- Instagram síða World Youth
- Skákir á lichess: G16 | U14
- Chess-results: G16 | U14












