Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Arnar Ingi Njarðarson og Kristófer Orri Guðmundsson.

18 ára og eldri: 1000kr.

17 ára og yngri: 500kr.

10 skipta klippikort: 7500kr.

Félagsmenn TR 18 ára og eldri sem greitt hafa árgjaldið: 500kr.

Félagsmenn TR 17 ára og yngri: Ókeypis

 

 

- Auglýsing -