Í dag var tefld 8.umferð á HM ungmenna en mótið fer fram á Montesilvano á Ítalíu. Í stúlknaflokki U16 tapaði Guðrún Fanney Briem (2026) en Birkir Hallmundarson (2007) í opna U14 vann sinn andstæðing. Lokasprettur framundan en 11 umferðir eru tefldar á mótinu.

Guðrún hafði svart og mætti Joy Zhang (1765) frá Bandaríkjunum. Upp kom Tartakower afbrigði Caro-kann varnar. Miðtaflið var í jafnvægi en sú bandaríska tefldi það vel og hélt ákveðnu tangarhaldi á stöðunni sem Guðrún náði aldrei að losa. Erfið skák en sú bandaríska greinilega sterkari en stigin gefa til kynna.

Guðrún hefur 3,5 vinning af 8.

Guðrún er númer 28 í stigaröð af 106 keppendum.

Birkir hafði svart og mætti strák frá N-Makedóníu Daniel Stefanovski (1860). Byrjunin var eitthvað betri á hvítt en frumkvæðið fjaraði fljótt út og upp kom endatafl sem var í jafnvægi. Þegar á leið virtist fljótfærni Makedónans koma honum um koll og Birkir fékk vænlegt endatafl sem hann vann úr. Hrókakaupin voru óþarfi en drottningarendataflið hafðist samt.

Birkir hefur 4,5 vinning af 8.

Birkir er númer 68 í styrkleikaröðinni af 151 keppanda í U14 flokknum.

Svipmyndir úr skáksal:

- Auglýsing -