Emilía Klara, Helgi Fannar og Nói.

Teflt var í tveimur flokkum, 4. bekk og eldri og 3. bekk og yngri. Það tóku 15 þátt í eldri flokki og tefldu sjö umferðir með tímamörkunum 5+3. Haukur Víðis Leósson vann með fullu húsi, í öðru sæti varð Anh Hai Tran með 5.5 vinning og í þriðja sæti varð Eiður Jökulsson með fimm vinninga ásamt 83 stiga gróða.

Anh, Haukur og Eiður.

Í yngri flokki mættu níu til leiks og því var teflt þar allir við alla, með styttri tímamörkum. Yngri flokkinn vann Helgi Fannar Óðinsson einnig með fullu húsi. Í næstu tveimur sætum voru krakkar úr Skákdeild Hauka, Nói Ingvaldsson með sjö vinninga og í þriðja sæti Emilía Klara Tómasdóttir með sex vinninga. Allir verðlaunahafar fengu eintak af bókinni Skáldskapur á skákborði eftir Guðmund Arnlaugsson, prentuð 1976. Bókin er reyndar ansi góð, handhæg og fróðleg.

Eldri flokkur á chess-results.

Yngri flokkur á chess-results.

Tómas Tandri Jóhannsson tók myndir frá mótinu sem eru á ljósmyndavef Skáksambandsins.

- Auglýsing -