Eftirfarandi upplýsingapóstur var sendur á aðildarfélög SÍ í síðustu viku.
Sæl öll og gleðilegt sumar!
Mótaáætlun hefur verið í vinnslu undanfarnar vikur og eru drög tilbúin. Ég sendi drögin hér í gegnum Sheets hlekk. Endilega skoðið og komið með athugasemdir!
Fundargerð aðalfundar er svo komin inn á heimasíðu SÍ ef einhver missti af því.
Íslandsmót skákfélaga verður að öllum líkindum haldið í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Ég stefni svo á samráðsfund með ykkur formönnum 18. ágúst þar sem við munum ræða mótáætlun.
Bestu kveðjur,
Jóhanna Björg
Forseti Skáksambands Íslands
- Auglýsing -
















