Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson, stigahæsti skákmaður Íslands, gerði jafntefli í 6. umferð á opna kanadíska meistaramótinu í skák. Vignir mtti kanadískum FIDE-meistara en náði ekki að knésetja hann.

Vignir hafði svart og náði fljótt að jafna taflið í miðtaflinu. Vignir fékk örlítið betra endatafl og reyndi að þæfa eins og hann gat að búa til vinningsmöguleika en það gekk ekki eftir. Litlu munaði að Vignir hefði sprengt sig en samkvæmt útsendingunni virðist anstæðingur Vignis hafa átt vinning í lokastöðunni ef hann hefði valið annan kóngsleik.

Miðað við gang mála í skákinni hefði það vægast sagt verið ósanngjarnt!

Jafnteflið þýðir að Vignir hefur 4,5 vinninga að loknum sex umferðum og er nálægt efstu mönnum. Ein skák er tefld á dag það sem eftir lifir móts! Vignir hefur hvítt gegn stórmeistara í umferð dagsins sem hefst í kvöld að íslenskum tíma.

- Auglýsing -