Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson gerði jafntefli gegn kollega sínum úr stórmeistarastétt Petro Golubka (2355) í sjöundu umferð Canadian Chess Open.
Vignir hefur 5 vinninga eftir umferðina og er sem stendur í 6. sæti mótsins.
Vignir náði ekki að láta hvítu mennina telja nógu vel í skákinni gegn Golubka. Hann missti aðeins tökin á stöðunni eftir byrjunina en vann sig aftur inn í skákina í miðtaflinu og átti sín færi. Skákin fjaraði svo út í jafntefli.
Áttunda umferð fer fram í kvöld og hefur Vignir þá svart gegn Nikolay Noritsyn (2585).
- Auglýsing -















