Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson hefur lokið leik á Opna Kanadíska meistaramótinu í skák.
Vignir gerði jafntefli við pólska stórmeistarann Nasuta (2495) í lokaumferðinni. Vignir slapp með skrekkinn þar sem sá pólski missti af vænlegri leið í lokastöðunni þar sem keppendur þráléku.
Vignir fékk sex vinninga í umferðunum níu. Hann var taplaus en gerði helst til of mörg jafntefli í seinni hluta mótsins.
- Auglýsing -















