Helgina 10-12 júlí fór annað mót í mótaröð Sumarsyrpu Taflfélagsins.

Góð mæting var þrátt fyrir að vera komið inn i júlí mánuð sem hefur sögulega verið mjög rólegur skákmánuður  og voru 39 keppendur skráðir til leiks.

55385986319_61601d3879_6k

Mótið var að þessu sinni óvenju spennandi og voru efstu keppendur að vinna hvorn annan þvers og kruss.

Fyrir lokaumferðina voru fimm keppendur efstir og jafnir með 4½ vinning, Anh hai, Jóel Helmer, Eiður, Katrín Ósk og Servin Joyal.

20260712_172521 (1)

Í lokaumferðinni vann Anh Hai sína skák  gegn Eiði, Jóel vann Servin Joyal. Loka skákin í mótinu til að klárast var skák Katrinu Ósk og Halldóru Jónsdóttur þar sem Halldóra hafði betur.

Anh Hai og Jóel Helmer enduðu tveir jafnir með 5½ vinning. Þeir voru jafnir á fyrstu oddastigum en Jóel reyndist einu stigi yfir á oddastigum tvö sem veitti honum sigur á mótinu.

Á eftir þeim komu Halldóra, Óðinn Darri og Miroslava sem vann sína skák gegn Degi. Þau enduðu öll jöfn með 5 vinninga. Eftir stigaútreikning var það Halldóra sem endaði efst á stigum og fékk fyrr það þriðja sætið

Lokastaðan eftir 7.umferðir

Lokastaðan eftir 7.umferðir

Verðlaunahafar: Anh Hai Tran, Jóel Helmer, Halldóra Jónsdóttir

Verðlaunahafar: Anh Hai Tran, Jóel Helmer Tobiasson, Halldóra Jónsdóttir

🥇Jóel Helmer Tobiasson 5½ (29)

🥈Anh Hai Tran 5½ (28)

🥉Halldóra Jónsdóttir 5

Stúlknaverðlaun: Halldóra Jónsdóttir, Miroslava Skibina

Stúlknaverðlaun: Halldóra Jónsdóttir, Miroslava Skibina

🥇Halldóra Jónsdóttir (24½)

🥈Miroslava Skibinia (23½)

🥉Katrín Ósk Tómasdóttir 4½

 

Taflfélag Reykjavíkur vill þakka keppendum fyrir þátttöku á mótinu og vonast til að sjá sem flesta á næsta móti í Sumarsyrpunni. Síðasta mót Sumarsyrpunnar verður haldið helgina 7-9 ágúst.

Hægt er að sjá lokastöðu mótsins á úrslitasíðu mótsins á Sumarsyrpa TR II 2026

Hægt er að sjá myndir frá mótinu á Ljósmyndasíðu Skáksambands Íslands

- Auglýsing -