Átta íslenskir skákmenn sátu á tafli á Czech Open í Pardubice 24. júlí – 1. ágúst.
Mæðginin Jósef Omarsson (2064), Lenka Ptácníková (2063) og Adam Omarsson (2006) eru meðal 221 keppenda í a-flokki. Þau eru á milli 186-217 í stigaröð keppenda.
Níunda og síðasta umferð fór fram í gær. Lenka hélft áfram frábærri frammistöðu og vann hinu pólsku Mariu Siekanska (2203) sem er aþjóðlegur meistari kvenna. Lenka hlaut 5 vinninga í umferðunum níu og það þótt hún hafi teflt upp fyrir sig allt mótið. Frábær frammistaða sem samsvarar 2269 skákstigum. Lenka hækkar um 48 stig fyrir frammistöðuna.
Jósef og Adam gerðu báðir jafntelfi í lokumferðinni. Jósef endaði með 3½ vinning og Adam með 3 vinninga. Jósef hækkar um 10 stig en Adam um 3 stig.
Í b-flokki (1500-2200) tefldu Jón Úlfur Hafþórsson (1935) og Theodór Eiríksson (1845).
Jón Úlfur vann í lokaumferðinni. en Theodór tapaði. Theodór hlaut 4½ vinning en Jón hlaut 4 vinninga. Theodór hækkaði um 6 stig fyrir frammistöðu sína.
Í c-flokki (u1800) tefldu Eríkur Orri Guðmundsson (1539).
Eiríkur vann í gær og endaði með 4½ vinning.
Í flokki 30+ tefldu
Sigurður Ingason (1783) og Óskar Haraldsson (1757).
Sigurður gerði jafntefli en Óskar vann Sigurður hlaut 5 vinninga en Óskar endaði með 4 vinninga. Sigurður hækkaði um 37 stig fyrir frammistöða sína en Óskar um heilt sgi.


















