Ætli Hannes hafi verið að hugsa "hmm ég kannast eitthvað við þessa stöðu"?

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2421) situr að tafli á alþjóðlegu móti á spænsku eyjunni Tenerife.

Hannes vann stigalágan andstæðing (1794) í fyrstu umferð í gær og mætir öðrum stigalágum andstæðingi í dag. (2119).

Líklega hefst alvaran á morgun þegar tvær umferðir fara fram.

Hannes er nr. 10 í stigaröð 147 keppenda frá 14 löndum. Meðal keppenda eru 11 stórmeistarar og þeirra stigahæstur er Spánverjinn Eduardo Iturrizaga Bonelli (2582).

- Auglýsing -