Fjórir ungir Íslendingar sitja að tafli í Summer Prague Open. Þar eru á ferðinni ungmennin Ingvar Wu Skarphéðinsson (2072), Benedikt Þórisson (2019), Adam Omarsson (2006) og Iðunn Helgadóttir (1837).
Iðunn var sú eina sem vann í gær, Adam gerði jafntefli en Benedikt og Ingvar Wu töpuðu gegn sterkum andstæðingum. Ingvar fyrir krótatíska stórmeistaranum Bogdan Lalic (2297).
Benedikt hefur 2 vinninga, Ingvar Wu og Adam hafa 1½ vinning og Iðunn hefur 1 vinning.
Fjórða umferð fram í dag og hefst kl. 14:15. Benedikt verður í beinni gegn tékkneska FIDE-meistaranum Rudolf Jun (2345)
- Auglýsing -

















