Lenka tók sénsinn þegar hann gafst og náði fyrsta jafnteflinu á mótinu eftir erfiða byrjun

Lenka Ptácníková (2063), stórmeistari kvenna, situr að tafli 16.-23. ágúst í Olomouc í Tékklandi. Teflir þar í 10 manna lokuðuðum flokki og er langstigalægst keppenda.

Lenka hefur ekki byrjað vel og hefur ½ vinning eftir fjórar umferðir. Teflir auðvitað í hverri umferð við andstæðinga sem eru mun stigahærri en hún.

Meðalstigin í flokki Lenku er 2266 skákstig.

 

 

- Auglýsing -