Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2352) situr að tafli þessa dagana á Kapadokya Open í Tyrklandi.
Sasha byrjaði ekki vel en í síðustu fjórum umferðum hefur hann tekið inn 3½ vinning. Í gær gerði hann jafntefli við stigahæsta keppendann úsbekista alþjóðlega meistarann Saidakbar Saydaliev (2484).

Aleksandr hefur 5 vinninga og er í 10.-26. sæti. Lokaumferðin er núna í gangi.
Í flokki Sasha, sem fram fer 17.-23. ágúst tefla 84 keppendur og þar af fjórir stórmeistarar. Sasha er nr. 16 í stigaröð keppenda.
- Auglýsing -

















