Íslandsmótið í atskák fór fram í gær í húsnæði Skákskólans. Mótið var afar vel skipað með fjórum stórmeisturum og tveimur alþjóðlegum meisturum. Mikla athygli vakti óvænt þátttaka Jóns L. Árnasonar, sem hefur verið fátíður gestur á mótum innanlands undanfarin misseri. Ungur enskur FIDE-meistari, Kenneth Hobson, sem var hér sem ferðamaður, tók einnig þátt. Og svo vantaði að sjálfsögðu ekki flesta efnilegustu skákmenn landsins, sem fengu þarna tækifæri til að tefla við sterka titilhafa.
Það var fljótt ljóst að stórmeistararnir Helgi Áss Grétarsson og Vignir Vatnar Stefánsson væru í miklu stuði og líklegastir til að berjast um titilinn. Svo fór að þeir höfðu báðir fullt hús eftir fjórar umferðir og mættust í fimmtu umferð. Þar lenti Helgi Áss í gríðarlegu tímahraki og fátt virtist benda til þess að hann næði að bjarga sér. Það gerði hins vegar Helgi – tefldi frábærlega og hafði sigur.
Þeir unnu svo báðir í sjöttu og næstsíðustu umferð og Helgi því með vinningsforskot á Vigni fyrir lokaumferðina. Helgi bauð andstæðingi sínum, Alexander Oliver Mai, jafntefli, sem Alex hafnaði. Alexander vann svo góðan sigur og því komu stórmeistararnir jafnir í mark. Þá var gripið til stigaútreiknings og þar kom í ljós að Helgi Áss hafði titilinn. Segja má að síðasta viðureign mótsins hafi ráðið úrslitum. Jón L. Árnason vann Kenneth Hobson, en hefði Englendingurinn unnið, hefði Vignir Vatnar orðið Íslandsmeistari!
Vignir Vatnar varð því að sætta sig við silfrið og er nú þrefaldur silfurhafi í kappskák, atskák og hraðskák. Hann er þó Íslandsmeistari í netskák og stefnir á að halda þeim titli! Alexander Oliver varð þriðji. Hann byrjaði illa en endaði vel og var reyndar taplaus á mótinu.
Helgi Áss ávinnur sér rétt til að tefla á HM í at- og hraðskák, sem fer að öllum líkindum fram í Indlandi á milli jóla og nýárs. Þar hafa einnig Vignir Vatnar (á stigum), Jóhann Hjartarson (hraðskák) og Hilmir Freyr (kappskák) keppnisrétt.
Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Iðunn Helgadóttir börðust um titilinn í kvennaflokki. Segja má að úrslitin hafi ráðist í sjöttu umferð þegar Hallgerður vann Iðunni. Þær komu reyndar jafnar í mark með 4 vinninga, en Halla var mun hærri á oddastigum. Hallgerður hefur einnig keppnisrétt á HM í hrað- og atskák sem og Lenka sem er Íslandsmeistari í kappskák og hraðskák.
Jósef Ómarsson tók ungmennaverðlaunin. Hann hlaut 4 vinninga og var hærri á oddastigum en Birkir Hallmundarson, Pétur Úlfar Ernisson og Dagur Sverrisson.
Röð efstu manna

Dagur hækkaði mest allra fyrir frammistöðu sína, eða um 68 stig. Næstir komu Birkir og Alexander (40 stig), Iðunn (37 stig) og Hallgerður og Emil Finnsson Fengur (30 stig).
Gunnar Björnsson sá um skákstjórn, Haraldur Björnsson, varaforseti SÍ, setti mótið og lék fyrsta leikinn, og Tómas Tandri Jóhannsson tók myndir. David Llada Íslands!






Lokastaðan á Chess-Results














