Lenka Ptácníková (2063), stórmeistari kvenna, tók þátt í móti dagana 16.-23. ágúst í Olomouc í Tékklandi. Tefldi þar í 10 manna lokuðuðum flokki og var langstigalægst keppenda.
Satt best að segja náði Lenka sér aldrei á strik og fékk aðeins hálfan vinning í níu umferðum. Þessi sterki flokkur hefur verið full stór pakki fyrir Lenku að þessu sinni.
Meðalstigin í flokki Lenku voru 2266 skákstig.
- Auglýsing -



















