Fjölnis-ungmenni heimsóttu Gautborgara og tefldu vina-skákmót
Skákdeild Fjölnis efndi til hópferðar ungmenna deildarinnar til Gautaborgar dagana 20. – 23. ágúst. Þar var vel tekið á móti hópnum og efnt til tveggja daga skákmóts. Teflt á 13 borðum, fjórar til sex umferðir. Teflt var í þremur styrkleikaflokkum, A,B og C. Sænsku strákarnir sýndu stelpunum og strákunum íslensku enga miskunn, voru talsvert stigahærri og unnu okkur stórt.
Séð yfir skáksalinn þar sem teflt var á 13 borðum
Teflt var í skáksal skáksambands Gautaborgar við góðar aðstæður. Góð æfingaferð fyrir veturinn. Það var í samstarfi Helga Árnasyni og Harald Berggren, forsvarsmanns Taflfélags Gautaborgar sem þessi áhugaverða skák-og skemmtiferð var skipulögð. Skákferðin var líka hugsuð sem skemmtiferð og góður tími gafst til að spila Laser-tag og eyða dagstund í Liseberg skemmtigarðinum.
Á efstu borðum voru tefldar lengri skákir og árangurinn bestur
Krakkarnir höfðu safnað fyrir ferðinni með veitingasölu á íslenskum skákmótum í Rimaskóla. Þetta er fimmta árið í röð sem Skákdeild Fjölnis efnir til utanlandsferðar þar sem skákmót og skemmtun eru á dagskránni. Frábær ferð til Gautaborgar og áhugi beggja aðila á að halda góðu samstarfi áfram.
- Auglýsing -