Bragi greinilega sáttur við sófann, enda tefldi hann vel og vann.

Undanrásir Íslandsmótsins í netskák fóru fram í gær í Chess.com. Svo fór að Bragi Þorfinnsson fór mikinn og vann mótið með 10 vinningum af 11 mögulegum. Ásamt honum tryggðu FIDE-meistararnir Oliver Aron Jóhannesson, Sigurbjörn Björnsson og Róbert Lagerman og Lenka Ptácníková stórmeistari kvenna sér keppnisrétt í 16 manna úrslitum.

Eftirtalin tefla í 16 manna úrslitum

Nr. Keppandi Hvernig
1 GM Vignir Vatnar Stefánsson Átta manna
2 IM Björn Þorfinnsson Átta manna
3 FM Ingvar Þór Jóhannesson Átta manna
4 FM Jón Kristinn Þorgeirsson Átta manna
5 IM Dagur Ragnarsson Átta manna
6 FM Símon Þórhallsson Átta manna
7 FM Bárður Örn Birkisson Átta manna
8 IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson Átta manna
9 GM Helgi Áss Grétarsson Skákstig
10 IM Hilmir Freyr Heimisson Skákstig
11 GM Jóhann Hjartarson Skákstig
12 GM Bragi Þorfinnsson Undanrásir
13 FM Oliver Aron Jóhannesson Undanrásir
14 FM Sigurbjörn Björnsson Undanrásir
15 FM Róbert Lagerman Undanrásir
16 WGM Lenka Ptácníková Kona-undanrásir

 

Í úrslitakeppninni verða tefld sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.

Íslandsmótið í netskák fer fram á sunnudögum á mili 6. september og 15. nóvember.

Verðlaun í aðalkeppninni

  1. 125.000 kr.
  2.   75.000 kr.
  3.   25.000 kr.
  4.   25.000 kr.

Dagskrá (hefur tekið smávægilegum breytingum)

Dags. Vikudagur Netskák
25-Aug-2026 Tuesday Undanrásir
6-Sep-2026 Sunday Netskák (16)
13-Sep-2026 Sunday Netskák (16)
27-Sep-2026 Sunday Netskák (16)
4-Oct-2026 Sunday Netskák (16)
25-Oct-2026 Sunday Netskák (8)
1-Nov-2026 Sunday Netskák (8)
8-Nov-2026 Sunday Netskák (4)
15-Nov-2026 Sunday Netskák (2)

 

- Auglýsing -