WFM Guðrún Fanney Briem (1816) situr þessa dagana að tefla í Maia í Portúgal. Hún tekur þar þátt í efsta flokki.
Guðrún Fanney gerði í gær jafntefli við spænska FIDE-meistarann Francisco Javier Santos Izquierdo (2043) í fimmtu umferð. Guðrún Fanney hefur 1½ vinning eftir 5 umferðir. Hefur ávallt gert jafntelfi með svörtu en tapað með hvítu. Vonandi breytist það í dag!

Alls taka 139 skákmenn frá 32 löndum í flokki (1800+) Guðrúnar og þar af fimm stórmeistarar. Guðrún er næststigalægst keppenda en hún er auðvitað mun betri en stigin gefa til kynna. Mótið fer fram 21.-29. ágúst. Ein umferð á dag. Gamli skólinn.
- Auglýsing -
















