Gauti var til fyrirmyndar á mótinu

Gauti Páll Jónsson endaði einn efstur, með sjö vinninga í sjö skákum, á Æfingamóti Skákskóla Íslands sem fram fór dagana 5.-26. ágúst.

Tilgangur mótsins var að gefa metnaðarfullum ungmennum, og öðrum áhugasömum, tækifæri á því að hita sig upp fyrir komandi skákvetur. Of algengt er að ungmenni taki sér hlé frá skákiðkun á sumrin og komi ryðguð inn í haustið.
Keppendur mótsins voru 38 talsins og komu úr ýmsum áttum en auk fjölda efnilegra ungmenna tóku einnig þátt liðsmenn kvennalandsliðs Íslands í skák ásamt öðrum sterkum gestakeppendum.

Mótið var með sérstöku fyrirkomulagi en keppendum var frjálst að taka yfirsetur í öllum umferðum mótsins og bauð mótið því upp á mikinn sveigjanleika. Auk þess voru hvorki þátttökugjöld né verðlaun í mótinu og keppendur því bara mættir í þeim tilgangi að tefla og æfa sig. Tefldar voru kappskákir, með tímamörkunum 90+30, sem reiknaðar voru til stiga.

Skákskóli Íslands hefur áður staðið fyrir móti af þessu tagi í ágústmánuði og má vænta þess að þessi viðburður sé kominn til að vera.

Gauti Páll sýndi úr hverju hann er gerður og vann allar sínar skákir, flestar af talsverðu öryggi. Gauti hækkar um +36 stig fyrir árangurinn.

Alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson varð annar með fimm vinninga en næst voru Eiríkur K. Björnsson, ungu strákarnir Pétur Úlfar Ernisson, Dagur Sverrisson, Birkir Hallmundarson og Anh Hai Tran, auk landsliðskvennanna Iðunnar Helgadóttur og Hrundar Hauksdóttur og Brynjars Bjarkasonar en öll fengu þau 4,5 vinning.

Iðunn Helgadóttir

Dagur Sverrisson átti mjög gott mót og hækkaði mest á stigum, +96 stig. Hinn ungi Helgi Fannar Óðinsson stóð sig einnig með prýði og hækkaði um +45 skákstig.

Helgi Fannar Óðinsson einbeittur

Nánar má lesa um árangur og stigabreytingar einstakra keppenda á Chess-results.

Tómas Tandri Jóhannsson tók fjölda mynda á mótinu og fær hann bestu þakkir fyrir það.
Hægt er að fletta í gegnum myndirnar hér að neðan:

Gauti

- Auglýsing -