Norðurlandamóti skólasveita í skák lauk í gær í Helsingborg í Svíþjóð.

Tveir íslenskir skólar tóku þátt í mótinu; Langholtsskóli í yngri flokki (1.-7. bekkur) og Lindaskóli í eldri flokki (8.-10. bekkur).

Lindaskóli átti góðan lokasprett á mótinu og lyfti sér upp í baráttu um verðlaun. Síðasta skák mótsins réði úrslitum um lokastöðuna en Birkir Hallmundarson á 1. borði landaði mikilvægu jafntefli sem tryggði skólanum bronsið.

Árangur einstakra liðsmanna:

  1. Birkir Hallmundarson 0,5 af 5.
  2. Örvar Hólm Brynjarsson 3,5
  3. Sigurður Páll Guðnýjarson 3,5
  4. Nökkvi Hólm Brynjarsson 2

Liðsstjóri var Björn Ívar Karlsson.

Sænski skólinn Berzeliusskolan varð Norðurlandameistari af miklu öryggi.

Lokastaðan

Í yngri flokki endaði Langholtsskóli í 4. sæti. Skólinn átti mjög góða spretti á mótinu, margar góðar sigurskákir, en skorti aðeins upp á reynsluna til þess að blanda sér í baráttu um verðlaun. Þátttakan á mótinu var mikilvæg reynsla fyrir unga liðsmenn upp á framtíðina.

Sigurskák Péturs Úlfars Ernissonar í lokaumferðinni vakti mikla athygli  og gladdi sérstaklega liðsmenn danska skólans Giersings Realskole, en sigur Péturs tryggði þeim Norðurlandameistaratitilinn.

Árangur einstakra liðsmanna:

  1. Pétur Úlfar Ernisson 4 af 5
  2. Gunnar Þór Þórhallsson 0,5
  3. Jakob Steinn Valdimarsson 2
  4. Vilhelm Þór Have Hermansen 2

Liðsstjóri var Gauti Páll Jónsson.

Lokastaðan

- Auglýsing -